Ronaldo-lausir Portúgalar unnu Ítalíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Portúgalar fagna marki í kvöld.
Portúgalar fagna marki í kvöld. Vísir/Getty
Portúgal vann 1-0 sigur á Ítalíu í fyrsta leik liðsins í Þjóðadeildinni en bæði lið leika í A-deildinni í riðli þrjú.

Cristiano Ronaldo var ekki í leikmannahópi Portúgal en hann fékk frí. Ef marka má samfélagsmiðla hans nýtur hann frísins vel á ströndum Ítalíu.

Markalaust var í hálfleik en eina mark leiksins kom á 48. mínútu þegar Andre Silva skoraði eftir undirbúning Bruma. Lokatölur 1-0.

Þetta var annar leikur Ítalíu í riðlinum en þeir eru með eitt stig eftir jafntefli við Pólland í fyrstu umferðinni. Portúgalar á toppnum með þrjú stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira