Eriksen með bæði mörkin í sigri Dana

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Eriksen skoraði tvö mörk í dag
Eriksen skoraði tvö mörk í dag vísir/getty
Danir unnu nokkuð öruggan sigur á Wales í Þjóðadeild UEFA í Árósum í dag. Christian Eriksen skoraði bæði mörk Dana.

Lærisveinar Ryan Giggs völtuðu yfir Írland í fyrsta leik riðils á fimmtudag en sama sóknarboltan var ekki að sjá í leiknum í dag. Wales átti vart skot á markrammann og var sóknarleikur þeirra afar bitlaus.

Eftir að hafa náð tímabundnum sáttum við danska knattpsyrnusambandið voru allar helstu stjörnur Danmerkur mættar í byrjunarliðið. Þar á meðal var Tottenham-maðurinn Christian Eriksen.

Eriksen skoraði frábært mark á 32. mínútu í stöngina og inn með lúmsku skoti þar sem hann snéri baki í markið.

Danir fengu vítaspyrnu á 62. mínútu þegar Ethan Ampadu fékk boltann í hendina innan vítateigs. Líklega ekki viljaverk en ekki hægt að kvarta yfir þeim dómi. Eriksen fór á punktinn og skoraði af öryggi.

Bæði lið fengu færi til þess að bæta við en fleiri urðu mörkin ekki. Lokatölur 2-0.

Danir og Wales eru því með þrjú stig í riðli 4 í B deildinni, Danir eftir einn leik en Wales tvo. Írar eru á botninum með 0 stig eftir einn leik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira