Menning

Jón Viðar leiðir Kona fer í stríð til slátrunar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jón Viðar Jónsson er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir þegar kemur að gagnrýni.
Jón Viðar Jónsson er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir þegar kemur að gagnrýni. Vísir/E.Ól
Óhætt er að segja að gagnrýnandinn Jón Viðar Jónsson syndi á móti straumnum í gagnrýni sinni á Kona fer í stríð, kvikmynd Benedikts Erlingssonar sem hefur fengið góðar viðtökur í kvikmyndahúsum hér heima sem erlendis.

Í myndinni segir frá baráttu og skemmdarverkum umhverfisverndarsinna, sem Halldóra Geirharðsdóttir leikur, gegn frekari virkjunum. Saklaus kórstjóri á fimmtugsaldri á daginn en slær út háspennulínur á hálendinu á næturnar.

„Vond mynd - afar vond. Hún er svo löðrandi í pólitískum rétttrúnaði um umhverfisvernd, ættleiðingu barna, illa meðferð á útlendingum og fleira þess háttar að ég man varla eftir öðru eins úr íslenskri bíómynd,“ segir Jón Viðar sem hefur aldrei verið feiminn við að segja sína skoðun.

Athygli vekur að hann tengir við leikstjórann Benedikt Erlingsson og leikarana Halldóru Geirharðsdóttur og Jóhann Sigurðsson svo gagnrýnin fari ekki framhjá þeim.

„Ég veit að sumir tíðka að "tagga" ekki þá sem þeir eru að gagnrýna hér á FB, eins þótt hún teljist opinber vettvangur.. Það finnst mér aumingjaskapur og lágkúra. En annars verður hver að hafa sína skoðun á því.“

Stiklu úr myndinni má sjá hér að neðan.

Fimm stjörnu dómar

Kvikmyndin hefur fengið fimm stjörnu dóma bæði í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu, fullt hús stjarna.

„Kona fer í stríð er ævintýri og að horfa á hana er ævintýraleg upplifun. Kvikmyndatakan er frábær, handritið er svakalega vandað og tónlistin er dásamleg, allt við kvikmyndina er í raun til fyrirmyndar,” sagði Brynja Hjálmsdóttir, gagnrýnandi Morgunblaðsins, um myndina.

„Ofboðslega falleg kvikmynd þar sem heillandi myndmál, frábær leikur, falleg saga, meitlað handrit og mergjuð notkun tónlistar renna saman í náttúruafl sem Benedikt Erlingsson virkjar með einhverjum óræðum galdri. Kona sem fer í stríð er lítið, krúttlegt náttúruafl,“ sagði Þórarinn Þórarinsson í Fréttablaðinu.

Sýn Jóns Viðars á myndina er nokkuð ólík þeirri sem birtist í gagnrýni dagblaðanna.

Sitt sýnist hverjum um Jón Viðar og hans gagnrýni. Hefur mörgum þótt hann ganga of langt í nálgun sinni undanfarin ár. Hann ræddi gagnrýni á eigin gagnrýni á Bylgjunni á sínum tíma.

Navíur sentimentalismi

„Aðalpersónan er einhvers konar tvískiptingur, Halldóra Geirharðsdóttir leikur báða partana: annar er Súpermann (afsakið Súperkona) sem býr í 101 R og stundar terrorisma í þágu umhverfisverndar, hinn er jógi sem trúir á frið á jörðu eins og hipparnir; í lok myndarinnar fallast þessir partar í faðma og ganga upp í einhverju sem ég geri ráð fyrir að eiga að að vera æðra vitundarstig, ímynd siðferðislegrar fullkomnunar hér á jörð - eða sú er sýnilega tilætlun Benedikts,“ segir Jón Viðar.

„Svo leikur Johann Sigurðarson bónda nokkurn sem er fulltrúi hinnar heilsteyptu, hjartahreinu alþýðu sem býr að sjálfsögðu úti á landi; en það höfum við nú vitað allt frá því Halldór Laxness skrifaði Atómstöðina.“

Jón Viðar veltir fyrir sér hvort Landsvirkjun og Álverið í Straumsvík hafi ekki örugglega styrkt gerð myndarinnar, svo hljóti að vera.

„Ef Benedikt er hættur að vinna í leikhúsi til þess að gera svona naívan sentimentalisma þá er verr farið en heima setið hjá honum. Það getur vel verið að þessi mynd geri það gott á kvikmyndahátíðum; hún mun lifa stutt og gleymast.“

Halldóra Geirharðsdóttir og Benedikt Erlingsson í Cannes.Semaine de la critique

„Besta mynd íslenskrar kvikmyndasögu“

Fjölmargir hafa ýmislegt við gagnrýni Jóns Viðars að athuga. Bókaútgefandanum Kristjáni B. Jónassyni finnst hún heldur grunn og Páll Valsson útgefandi er á sama máli.

„Algerlega ósammála. Tvíræðni og háð sem gegnsýrir myndina, og almenn fyndni, setja pólitískan boðskap í annað samhengi og vinnur gegn öllum rétttrúnaði.“

Gagnrýnandinn Arnar Eggert Thoroddsen segir gagnrýni Jóns Viðars sanna „að þetta er besta mynd íslenskrar kvikmyndasögu.“

Kvikmyndin hefur einnig fengið mikið lof fyrir utan landsteinana. Var valin til keppni í Critic's Week á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Screen Daily, Cineuropa, Variety og Hollywood Reporter fóru fögrum orðum um myndina þegar hún var sýnd á Cannes í maí.




Tengdar fréttir

„Er De en Melle?“

Jón Viðar fær vart frið á Facebook fyrir erlendum þokkadísum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×