Menning

Selmu Björns misboðið yfir slátrun Jóns Viðars á Óþelló: "Má þetta?“

Atli ísleifsson skrifar
Selma Björnsdóttir sakar Jón Viðar um ófagmennsku.
Selma Björnsdóttir sakar Jón Viðar um ófagmennsku.
Jón Viðar Jónsson, leikhúsgagnrýnandi Fréttatímans, finnur nýjustu leiksýningu Þjóðleikhússins, Óþelló, allt til foráttu í dómi sem birtist á vef Fréttatímans í gær. Dómurinn hefur skiljanlega vakið mikla athygli enda fer Jón Viðar sérstaklega hörðum orðum um leiksstjórann Gísla Örn Garðarsson, leikstjóra sýningarinnar og Þjóðleikhússtjórann Ara Matthíasson.

Leikstjórinn og leikkonan Selma Björnsdóttir segist í færslu á Facebook-síðu sinni ekki hafa lesið aðra eins gagnrýni sem sé jafn full af mannfyrirlitningu og aðdróttunum. „Þvílík ófagmennska. Fyrst var mér misboðið, svo gat ég ekki annað en hlegið. Þetta er bara svo mikill dónaskapur að það er sorglegt að mínu mati. Ég spyr bara einlæglega: Má þetta?“

Kaldhæðinn texti

Jón Viðar fer í dómnum mörgum kaldhæðnislegum orðum um hvernig greinargerð Gísla Arnar leikstjóra hefði átt að hljóma í leikskránni.

„Það sem þið, hæstvirtir áhorfendur, eigið í vændum og hafið keypt ykkur inn á er ekki neitt gamaldags Sjeikspír-drasl því ég er framúrstefnuleikstjóri og nú ætla ég að brytja leikrit Shakespeares í spað eins og allir sannir framúrstefnuleikstjórar – og mér er skítsama þó að ég eyðileggi jólin fyrir ykkur sem eruð svo vitlaus að halda að ég geri ekki nákvæmlega það sem mér sýnist,“ segir í dómnum.

Jón Viðar hjólar svo í stóru leikhúsin tvö - Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið - og segir þetta enn eina „skrumskæling[una] á verki eftir Shakespeare sem tvö aðalleikhús þjóðarinnar haf[i] trakterað okkur nokkuð reglubundið á síðustu tuttugu árin eða svo.“

Áfram heldur Jón Viðar þar sem hann gagnrýnir að sögulegur rammi verksins hafi verið klipptur út, persónur séu afskræmdar svo engin veki áhuga eða samúð. „Þetta er allt saman úrkynjað pakk í plasti. Óþelló er búralegur öskurapi.“

Björn Hlynur eini ljósi punkturinn

Aðalleikarar sýningarinnar eru svo teknir fyrir, hver á fætur öðrum, þar sem Jón Viðar gagnrýnir meðal annars Ingvar E. Sigurðsson, sem fer með hlutverk Óþellós. „Ég efa raunar að Ingvar hefði ráðið vel við hlutverk Óþellós, jafnvel undir vitrænni leikstjórn; textameðferð Ingvars er ekki hans sterka hlið og sjaldan hrífandi.“

Jón Viðar segir eina ljósa punktinn vera Björn Hlyn Haraldsson, sem sé sá eini sem „sýni eitthvað sem kalla [megi] leiklist.

Loks beinir hann orðum sínum til leikhússtjórans sjálfs. „Herra þjóðleikhússtjóri, Ari Matthíasson! Þessi sýning er ykkur öllum til skammar og einkum þér, því endanlega er ábyrgðin þín.“

Á algjörum villigötum

Sigríður Jónsdóttir, leikhúsgagnrýnandi Fréttablaðsins, gaf sýningunni tvær stjörnur af fimm, en í lokaorðum dómsins kom fram að þetta væri „Óþelló á algjörum villigötum“. „Afbygging og nýjar nálganir á verkum Williams Shakespeare eru nauðsynlegar til að rannsaka áður ókannaða fleti á sögum þessa mikla meistara. Tilraunir eru nauðsynlegar íslenskum sviðslistum. En þær verða að vera meira en hugaðar og nýstárlegar, þær verða líka að vera vel ígrundaðar og úthugsaðar,“ segir í dómi Sigríðar.

Valin til þátttöku á leiklistarhátíð í Kólumbíu

Fyrr í vikunni kom fram að sýningin hafi verið valin til þátttöku í stærstu leiklistarhátíð Suður-Ameríku sem fram fer í Bogotá í Kólumbíu í mars 2018.

Gísli Örn Garðarsson, einn forsprakka Vesturports, sagðist í samtali við Vísi að vonum vera ánægður með boðið. „Þetta er ein stærsta leiklistarhátíð í heimi, hún er mjög stór að umfangi og borgin er alveg undirlögð á meðan hátíðinni stendur svo við erum upp með okkur.“

Hátíðin heitir Festival Iberoamericano de teatro de Bogotá og er haldin á tveggja ára fresti. Þjóðleikhúsið og Vesturport-hópurinn mun halda til Kólumbíu vorið 2018.




Tengdar fréttir

Grípa í skugga á sviðinu

Harmleikurinn um Óþelló er jólasýning Þjóðleikhússins í ár. Þau Arnmundur Backman og Aldís Hamilton fara með hlutverk í sýningunni og ræða um leikverkið og arfleifð foreldra sinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×