Vorspá Siggu Kling – Vatnsberinn: Bæði ljósir og dökkir tímar í kringum þig 4. maí 2018 09:00
Elsku Vatnsberinn minn, skoðaðu ótrúlega vel hver þú ert og sérstaklega vel að bera þig ekki saman við neinn annan því þú ert svo einstakur og lætur öllum líða vel í kringum þig sem þýðir að úr því karma sem lífið gefur þér verður aldrei neitt hrun. Ef þú elskar verðurðu elskaður, ef þú hrósar verður þér lyft upp í lífinu. Allt sem þú gefur frá þér kemur tilbaka í margfaldri mynd er það eina sem þú þarft að muna. Lífið er nákvæmlega eins og að ala upp barn og að stjórna lífi sínu; þú gefur barni gleði og þá sýnir það þér gleði á móti, ef þú veitir því umburðarlyndi sýnir það þér þá umburðarlyndi sem þú vilt að aðrir sýni þér. Vorið færir þér veislu og svo sannarlega hrífandi og spennandi tilveru, og í þessari orku þarftu að nota hreinskilni því allir leikir eða undirferli munu ekki gagnast þér heldur bara slá þig alveg niður. Þegar þú varst yngri varstu frekar feiminn en hvert ár gefur þér meira sjálfsöryggi svo fagnaðu aldrinum. Ef þú skoðar síðustu mánuði geturðu séð að lífið er svo sannarlega þess virði að lifa því. Í raun og veru ertu mjög gamaldags og þar af leiðandi svo klassísk persóna, alveg nákvæmlega eins og tíska sem kemur aftur og aftur er algjörlega tímalaus. Að sjálfsögðu hafa verið bæði ljósir og dökkir tímar í kringum þig því annars væri alls ekkert að gerast, og ég segi það er svo spes að þegar ég segi við fólk það sé að mæta hindrunum í lífinu þá segir það oft: Ég sem hélt þetta ár yrði svo auðvelt, en þá skaltu muna það sem ég segi svo oft, að af einhverju of auðveldu verður ekkert magnað til, svo hindranirnar gera þig bara sterkari og sterkari. Þín yndislega réttlætiskennd fær fólk til að trúa á þig því þú segir yfirleitt alltaf það sem í huga þínum býr og byggir fólk upp á sama hátt og þú vilt að að aðrir byggi þig upp. Á næstu mánuðum áttu eftir að finna hver þinn tilgangur er og að sjálfsögðu er þinn eini tilgangur að vera hamingjusamur. Þú átt eftir að koma svo mörgum á óvart vegna þess að þú kannt ekki að stoppa þegar aðrir segja þér að gera það svo hættu að setja sjálfum þér einhver mörk því þú þarft ekki að láta „editera“ eða leikstýra lífi þínu, hvorki með það sem snýr að uppeldi né öðru sem stýrir þér. Þú ert svo fylginn þér og frjáls andi og átt eftir að nýta þér það sem hefur verið að gerast á undanförnum mánuðum til þess að sjá að þú ert í miklu betri aðstöðu en þú áður varst. Setningin þín er: Gríptu fjörið og húmorinn, því lífið krefst þess!Knús og kossar, þín Sigga KlingFrægir Vatnsberar: Pacas hans Begga, Geir Sveinsson handknattleiksþjálfari, Halla himintungl, Clark Gable leikari, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir borgarfulltrúi, Yoko Ono, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Katrín Jakobsdóttir þingkona, Hilmir Snær Guðnason leikari, Rikka sjónvarpskona, María Ólafsdóttir Júróvisjónstjarna, Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kastljóss, Gunna Dís útvarpskona, Höddi Magg, Andrea Róberts mannauður, Hilmar Hafsteinsson ofurfasteignasali, Rut Roberts flugfreyja hjá Icelandair, Ragnheidur Guðfinna sálfræðingur.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Tónlist Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár Áskorun Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Lífið Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Lífið „Þetta hefur alltaf verið draumurinn“ Matur Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Lífið Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Lífið Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? Lífið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Lífið samstarf Hulunni svipt af Taskmaster Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Pearl Jam á móti sjókvíaeldi á Íslandi Finnbogi hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin fyrir Skjálfta Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Íslensk ungmenni fá sendar nektarmyndir í hefndarskyni Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Djammið lifir á Prikinu Lýsir yfir stuðningi við Hafdísi Höfundur Fíusólar svarar reiðum mæðrum eftir ákall um bókabrennu „Enn önnur ömurlega lygasagan um mig“ Spurð hvort hún væri að kyssa bróður sinn „Fjárhagslega stór biti“ Hafdís stígur fram vegna Kleina Sjóðandi hiti á klúbbnum á föstudag Varð að svara einni spurningu rétt til að fá eina milljón Deilur Bríetar og Pálma smitast yfir á síðu Zöru Larsson Sjá meira