Opna líkamsræktarstöð í kartöflugeymslu Train Station kynnir 2. janúar 2018 10:00 Sif Garðarsdóttir og Guðjón Ingi Sigurðarson munu opna glæsilega líkamsræktarstöð í gömlu kartöflugeymslunum í Elliðaárdal í janúar. Þar verður lögð áhersla á einstaklingsmiðaða þjálfun. Mynd/Eyþór
Train Station er ný og sérhæfð líkamsræktarstöð sem hefur starfsemi í janúar í gömlu kartöflugeymslunum í Elliðaárdal. Stöðin býður upp á fjölbreytta valkosti fyrir þá sem vilja æfa í hóp. „Train Station er flott, sérhæfð líkamsræktarstöð þar sem lögð er áhersla á faglega einstaklingsmiðaða hópþjálfun sem sniðin er að markmiðum hvers og eins. Við verðum einnig með einkaþjálfun sem og styrktarþjálfun fyrir 60 ára og eldri,“ segir Sif Garðarsdóttir en hún opnar ásamt Guðjóni Inga Sigurðarsyni nýja líkamsræktarstöð í gömlu kartöflugeymslununum í Elliðaárdal í janúar.„Umhverfið er dásamlegt. Elliðárdalurinn er tilvalinn til íþróttaiðkunar utandyra. Húsnæðið sjálft er mjög flott og allt unnið í nánu samstarfi við arkitekt út frá vistvænni hugmyndafræði,“ segir Sif.Vistvæn hönnun„Umhverfið er dásamlegt. Elliðaárdalurinn er tilvalinn til íþróttaiðkunar utandyra og munum við svo sannarlega nota okkur það þegar veður leyfir. Húsnæðið sjálft er mjög flott og allt unnið í nánu samstarfi við arkitekt út frá vistvænni hugmyndafræði. Við erum til dæmis með umhverfisvænar gúmmímottur á gólfum og þá er veitingasalan hjá okkur ekki byggð á fæðubótarefnum heldur á náttúrulegum hráefnum. Þeytingarnir verða framreiddir í umhverfisvænu plasti og við stefnum á að verða alveg plastlaus í framtíðinni.“Fagleg nálgunÞau Sif og Guðjón eiga bæði að baki áralanga reynslu sem þjálfarar. Guðjón er bæði einka- og styrktarþjálfari og fyrrverandi leikmaður í handbolta. Sif er einkaþjálfari og heilsumarkþjálfi og hefur þjálfað frá árinu 1998. Þau segja fleiri valkosti hafa vantað fyrir fólk sem kjósi að æfa í hóp. Þjálfun verði að sníða að markmiðum, styrk- og veikleikum hvers og eins. „Við leggjum mikla áherslu á hreyfiferla og að æfingarnar séu gerðar rétt. Allt of oft er fólk að æfa vitlaust og þá verður ávinningurinn ekki sem skyldi,“ útskýrir Sif. „Við erum öll einstök og því er engin ein ríkisleið til sem virkar fyrir alla. Síðustu ár hefur þjálfun sem fer fram í hópum verið mjög vinsæl, til dæmis CrossFit, en okkur fannst vanta fleiri valmöguleika fyrir fólk sem vill æfa í hóp. Í grunninn ætti þjálfun að beinast að því að gera líkamann betri og til lengri tíma í stað þess að einblína á kílóatöluna. Lífaldur okkar lengist svo það er eins gott að hugsa um þennan eina líkama sem við fáum.“ Þau Guðjón vinni því með sérhannað æfingakerfi.Sérhæft æfingakerfi„Í upphafi fá allir viðtal hjá þjálfara sem er eins konar heilsufarsgreining; farið yfir heilsufar, líkamsástand, markmið sem og næringu ásamt mælingum. Viðtöl hjá þjálfara eru síðan í boði mánaðarlega. Allir sem skrá sig hjá okkur fara síðan í gegnum tækniþjálfun. Tækniþjálfunin miðar að því að sérsníða þjálfunina að hverjum og einum, framkvæmt er styrktar- og liðleikapróf, kennd rétt líkamsbeiting, rétt lyftingatækni og hlutverk hverrar æfingar útskýrt. Eftir það getur fólk mætt hvenær sem er. Þjálfunin fer fram í litlum hópum, sem skráð er inn í, og gerir það þjálfurum okkar fært að stílfæra allar æfingar dagsins út frá veik- og styrkleikum hvers og eins. Æfingakerfið miðar að því að vinna að alhliða styrk, þoli og liðleika og hjá okkur starfa eingöngu sérþjálfaðir og menntaðir þjálfarar,“ útskýrir Sif.Fjarþjálfun„Við erum einnig með sérhæfða og faglega fjarþjálfun þar sem við vinnum markvisst með skjólstæðingum okkar í að lágmarki 10 vikur til þess að ná fram sem bestum árangri,“ segir Guðjón. „Það tekur tíma að breyta lífsstíl og rannsóknir hafa sýnt fram á að við þurfum 66 daga til að geta gert nýja hegðun vanabundna. Við vinnum að langtímalausnum og notum ekki sama æfingaplanið á alla heldur sérsníðum æfingaplan fyrir hvern og einn. Skjólstæðingar koma til okkar í viðtöl á staðinn eða tekið er viðtal í gegnum síma. Fólk þarf ekki að senda okkur myndir. Einnig fáum við skjólstæðinga okkar til að fylla út ítarlega skýrslu er varðar heilsufar og hreyfingu, ásamt styrktar- og liðleikaprófi. Þannig getum við einbeitt okkur að veikleikum hvers og eins og unnið þannig upp varanlegt „gott form“.Næringarþjálfun„Einnig bjóðum við upp á sérsniðna næringarþjálfun sem er í grunninn heilsumarkþjálfun sem byggir á 20 ára reynslu. Námið í heilsumarkþjálfun gerir okkur kleift að vinna með skjólstæðinga okkar nákvæmlega þar sem þeir eru staddir og hvort sem fólk er að stíga sín fyrstu skref í bættu mataræði eða sérhæfðu mataræði. Allt frá paleo til vegan,“ útskýrir Sif. „Við sendum fólk ekki út að kaupa fæðubótarefni heldur byggjum okkar ráðleggingar á hreinu fæði og raunhæfum leiðum til þess að breyta mataræði til framtíðar. Markhópurinn okkar er venjulegt fólk.“ Nánari upplýsingar er að finna á www.trainer.is & www.trainstation.is. Á síðunni má einnig kaupa rafbækur og leiðarvísa.
Mest lesið Gefi raunsanna mynd af stefnumótahremmingum trans kvenna Bíó og sjónvarp Potter-stjarna harmar hvernig fór með Rowling Bíó og sjónvarp Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Minningar um líf sem er að hverfa Lífið Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Eltihrellirinn í Baby Reindeer íhugar að leita réttar síns Bíó og sjónvarp „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Sjá meira