Eins manns liðið á Selhurst Park Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2018 11:30 Zaha fagnar með félögum sínum
Fáir leikmenn í ensku úrvalsdeildinni eru sínu liði jafn mikilvægir og Wilfried Zaha er fyrir Crystal Palace. Hann er langmikilvægasti leikmaður liðsins og án hans er það nánast ósjálfbjarga. Palace rúllaði yfir Leicester City, 5-0, á Selhurst Park á laugardaginn. Zaha skoraði eitt markanna og lagði annað upp. Þetta var jöfnun á stærsta sigri Palace í efstu deild. Liðið vann Manchester United með sömu markatölu í desember 1972. Mikilvægast af öllu er samt að með sigrinum er Palace svo gott sem búið að bjarga sér frá falli. Liðið er í 11. sæti deildarinnar með 38 stig, sex stigum frá fallsæti þegar liðin eiga aðeins 2-3 leiki eftir. Palace getur vel við unað að halda sér í deildinni í ljósi þess að liðið þurfti að bíða fram í 8. umferð eftir fyrsta markinu og fyrsta stiginu. Palace tapaði fyrstu sjö leikjum sínum með markatölunni 0-17 og útlitið var sótsvart. Frank de Boer var rekinn eftir aðeins fjórar umferðir og reynsluboltinn Roy Hodgson tók við. Zaha lék fyrsta leikinn í deildinni, þar sem Palace tapaði 0-3 fyrir nýliðum Huddersfield, en missti svo af næstu sex leikjum vegna hnémeiðsla. Hann sneri aftur gegn Englandsmeisturum Chelsea í 8. umferð og skoraði sigurmark Palace í afar óvæntum 2-1 sigri. Zaha og félagar fengu aðeins eitt stig úr næstu þremur leikjum en svo kom frábær kafli þar sem liðið var taplaust í átta leikjum í röð og kom sér af mesta hættusvæðinu. Febrúar og mars voru slæmir hjá Palace og falldraugurinn lét aftur á sér kræla. En uppskeran í síðustu fjórum leikjum er átta stig. Zaha skoraði fjögur mörk í þessum leikjum og gaf eina stoðsendingu. Zaha hefur leikið 26 deildarleiki á tímabilinu. Í þeim hefur Palace fengið 38 stig. Hann hefur misst af níu leikjum í vetur. Þeir hafa allir tapast og markatalan er 3-24. Palace er eins nálægt því að vera eins manns lið og hægt er. Framlag Zaha í sóknarleik Palace hefur verið sérstaklega mikilvægt því Christian Benteke hefur verið afleitur og einungis skorað þrjú mörk í 29 deildarleikjum í vetur. Zaha hefur skorað átta mörk á tímabilinu og lagt þrjú upp. Hann er næstmarkahæsti leikmaður Palace á eftir serbneska miðjumanninum Luka Milivojevic sem hefur skorað 10 mörk, þar af sjö úr vítaspyrnum. Hæfileikarnir hafa alltaf verið til staðar hjá Zaha og það er ástæða fyrir því að Sir Alex Ferguson keypti hann til Manchester United frá Palace í ársbyrjun 2013. Dvölin á Old Trafford var hins vegar endaslepp. Zaha lék aðeins fjóra leiki fyrir United og var lánaður til Cardiff á lokadegi félagaskiptagluggans í janúar 2014. Þar gerði hann lítið. Zaha var lánaður til Palace fyrir tímabilið 2014-15 og félagið keypti hann svo frá United nokkrum mánuðum síðar. Zaha sýndi ágætis takta á fyrstu tveimur tímabilunum sínum eftir að hann kom aftur til Palace en var ekki nógu skilvirkur. Það breyttist á síðasta tímabili. Zaha skoraði þá sjö mörk og gaf níu stoðsendingar. Í nýlegu viðtali segist hann hafa þroskast mikið síðan hann fór til United, aðeins tvítugur að aldri. „Ég vissi ekki við hverju ég átti að búast eða hvernig ég ætti að haga mér þegar ég fór til svona stórs félags. Ég var bara stráklingur sem vildi leika listir sínar. Mér var alveg sama um skilvirkni," sagði Zaha. „Núna tek ég hlutina miklu alvarlegar. Ég er allt annar maður. Ég er miklu þroskaðri og þrautseigari. Ég þurfti að vera sterkur andlega eftir það sem ég gekk í gegnum hjá United. Þetta snýst að svo stórum hluta um hugarfar." Zaha hefur nær alltaf leikið á kantinum en þegar Hodgson tók við var hann færður í framlínuna. Hraði Zahas og leikni njóta sín ekki síður þar. Zaha leikur að meðaltali 4,1 sinni á andstæðing í leik. Aðeins Eden Hazard er með betri tölfræði (4,8). Það kemur heldur ekki á óvart að það er brotið oftast á þeim af öllum leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar. Zaha hefur reyndar verið í efsta sætinu á þeim lista undanfarin þrjú ár. Hann fer stundum auðveldlega í grasið en hann er líka sparkaður miskunnarlaust niður. Zaha og félagar eru nánast búnir að bjarga sér frá falli. Spurningin er bara hvort hann verði leikmaður Palace á næsta tímabili. Ef svo verður ekki er líklega réttast að biðja fyrir þeim.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Körfubolti Vilhjálmur Bretaprins fagnaði titlinum með Aston Villa Fótbolti Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Handbolti Hættir við æfingabúðir af ótta við ebólu Fótbolti Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Handbolti „Hefðu átt að vera stærri úrslit“ Íslenski boltinn Áfrýjun Southampton hafnað og Middlesbrough mun spila úrslitaleikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Eyjamenn fara upp á Skaga í leit að fyrsta sigri sumarsins Sport Sjáðu Villa fagna titli: Rikki G missti sig yfir draumamörkum Fótbolti Fleiri fréttir Englandsmeistaraklipping á Selfossi: „Dásamlegir tímar“ Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Steve McClaren til Rotherham Arsenal í skrúðgöngu daginn eftir úrslitaleikinn Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Sjáðu mörkin: Titilvonir City urðu að engu og falldraugir vofir yfir Tottenham Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Falldraugurinn fylgir Tottenham í lokaumferðina Guardiola tjáði sig um framtíð sína í starfi Arsenal er Englandsmeistari Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Jason Daði fer frá Grimsby Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Dagskráin í dag: Tveir gífurlega mikilvægir leikir Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Haaland verður víkingur í teiknimynd Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Alonso tekur við Chelsea Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Sjá meira