Svört kona á bandarískum gullpeningi í fyrsta skipti nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 14. janúar 2017 14:18 Svona kemur gullpeningurinn til með að líta út. vísir/U.S.Mint
Myntslátta Bandaríkjanna hefur tilkynnt að svört kona mun vera í hlutverki „frelsisynjunnar“ eða Lady Liberty á næsta viðhafnargullpeningi sem stofnunin gefur út. New York Times greinir frá. Er þetta í fyrsta skipti sem svört kona prýðir bandarískan gullpening. Gullpeningurinn mun verða sleginn úr 24 karata gulli og hann mun vega tæp þrjátíu grömm. Peningurinn fer í sölu í byrjun apríl.Frelsisstyttan býður ferðalanga og innflytjendur velkomna.vísir/gettyMyntslátta Bandaríkjanna gaf út yfirlýsingu þar sem fram kom að á næstu árum myndu konur af indíánaættum, spænskættaðar konur og asískar konur prýða viðhafnarpeningana. „Frelsisynjan“ hefur táknræna þýðingu fyrir Bandaríkjamenn en Frakkar færðu Bandaríkjamönnum gríðarstóra styttu af frelsisynjunni árið 1886 – Frelsisstyttuna. Hlutverk Frelsisstyttunnar er að bjóða ferðamenn, innflytjendur og aðra velkomna til landsins. Rhett Jeppson, deildarstjóri Myntsláttu Bandaríkjanna, sagði í samtali við bandaríska fjölmiðla að nokkur fjöldi kvenna hafi haft samband við hann eftir að stofunin tilkynnti um hönnun peningsins og lýst yfir ánægju sinni. „Hún lítur alveg eins út og ég þegar ég var yngri,“ sögðu sumar þeirra við hann.
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Tveggja turna tal í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Tunglskotinu frestað til mars vegna leka Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Fórnarlömb vilja láta loka á Epstein-skjölin Bill og Hillary Clinton samþykkja að svara spurningum um Epstein Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Þrettán ára synti fjóra kílómetra til að bjarga fjölskyldu sinni Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Musk segir spænsk stjórnvöld hyggja á „þjóðarmorð“ Herða lög um brottvísanir: „Yfir á rauðu í von um að ljósið verði grænt“ Birtu nektarmyndir af ungum konum fyrir mistök Fara fram á síbrotagæslu yfir stjúpprinsinum sem var aftur handtekinn í gær Efast um að öll Epstein-skjölin séu ekta „Njósnasjeik“ keypti Trump-félag og fékk flögur Yfirmaður flóttamannastofnunar segir af sér vegna Epstein-tengsla Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Sjá meira