Kjötætur tengdar við raunveruleikann bak við máltíðina Stefán Þór Hjartarson skrifar 16. nóvember 2017 10:15 Ari Tómasson, Þórður Hans Baldursson og Lóa Björk Björnsdóttir eru meðal þeirra sem komu að gerð Planternative. Vísir/Ernir „
Planternative er verkefni sem byrjaði fyrir u.þ.b. ári síðan og gekk út á það að smíða hugbúnað sem skiptir út orðum sem notuð eru um dýraafurðir á internetinu fyrir eitthvað sem lýsir því sem um ræðir á réttmætari hátt. Hugbúnaðurinn virkar í flestum vöfrum og á öllum heimasíðum sem innihalda enskan texta. Það þýðir foie gras í pain paté, happy meal yfir í sad meal og þar fram eftir götunum. Það er eiginlega best að fólk nái bara í viðbótina og prófi svo að skoða t.d. einhverjar grilluppskriftir til að skilja nákvæmlega hvað þetta gengur út á,“ segir Þórður Hans Baldursson en hann og Lóa Björk Björnsdóttir, Ari Tómasson og margir fleiri eru fólkið á bak við verkefnið. „Tengingin frá dýrinu yfir í vöruna í matvöruversluninni er virkilega veik og tungumálið spilar þar inn í, sérstaklega á ensku. Cow yfir í beef yfir í steak myndar hugmyndafræðilega fjarlægð þar sem varan á diskinum á ekkert sameiginlegt með dýrinu og þar með litlar líkur á að neytandinn fái samviskubit,“ segir Ari.Hópur af hæfileikaríkum vegönumHvaða fólk er á bak við þetta? „Það myndaðist alveg brjálæðislega gott teymi í kringum þetta verkefni. Næstum eins og allt hæfileikaríkasta fólk landsins sé vegan. Hönnun og branding var t.d. mestmegnis í höndum Gabríels Bachmann og svo kom Svala Hjörleifsdóttir inn í þá vinnu á seinni stigum, Tómas Ken Shimomura-Magnússon forritaði m.a. hugbúnaðinn með mér en mesta vinnan fólst samt í efnisvinnu, þ.e. a.s. að finna þýðingar á orðunum sem við vildum skipta út. Þar voru betri en engin þau Lóa, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Ari Tómasson, Ýmir Grönvold, Sólveig Einarsdóttir, Kata Jóhannesdóttir, Marinella Arnórsdóttir, Gígja Sara Björnsson, Matthías Karl Karlsson, Guðrún Ýr Eyfjörð, Jón Pétur Þorsteinsson og Ophelié Karoni. Við fengum svo sérlega rágjöf frá Gunnari Jörgen Viggóssyni um ýmis mál,“ segir Þórður. „Þetta er bara alls konar fólk sem á það sameiginlegt að vera vegan. Ég kem bara stundum með mitt innlegg sem manneskja sem hefur skoðanir og er í listnámi. Vinir okkar hjálpuðu til við að þýða orðin í matarboðum,“ bætir Lóa við. Orðið „kjúklingakjöt“ upphafiðHvaðan kemur þessi hugmynd? „Hugmyndin spratt út frá hugleiðingum um orðanotkun og hugrenningatengsl. Áður en ég varð vegan var ég á veitingahúsi í borginni og það stakk mig þegar ég renndi yfir matseðilinn að í stað þess að boðið væri upp á kjúkling var boðið upp á kjúklingakjöt. Ég man að þessi ofurlitla breyting á orðalagi gerði það verkum að mig langaði ekki að panta neinn af þessum réttum. Breytti hugrenningatengslunum úr girnilega, tilbúna réttinum yfir í bleika, vakúmpakkaða kjötslímið úr kjötkælinum. Þannig að ég pantaði eitthvað annað. Seinna þegar ég fór að spá í veganisma og þeim aðferðum sem við sem aðhyllumst hann notum til þess að reyna að snúa öðrum rifjaðist þessi pæling upp og kveikti hugmyndin að planternative. Við erum nefnilega svo gjörn á að detta í einhverja „holier than thou“ orðræðu sem að mínu mati er ekki endilega alltaf málstaðnum til framdráttar. Þess vegna held ég að tól sem byggir á húmor í bland við hneykslun og óþægindi gæti verið öflugra en eldræða úr predikunarstólnum,“ segir Þórður. „Skammir og átök valda því að fólk fer í skotgrafirnar og verji sinn lífsstíl, sem er ekki gott fyrir neinn,“ bætir Ari við en Lóa er ekki endilega á sama máli: „Ég fæ reyndar ekki nóg af „holier than thou“ orðræðu. Þegar maður brennur fyrir einhverju þá er auðvelt að missa sig. Og upplifa sig vera einu manneskjuna sem er með sannleikanum í liði og finnast allir þeir sem borða kjöt vera þrjóskir, íhaldssamir og illa innrættir.“ Kennslutæki til að tengja kjötætur raunveruleikanum „Tilgangurinn var að reyna að skapa eins konar vegan kennslutæki sem hefði nógu mikið afþreyingargildi og væri nógu áhugavert til þess að fólk sem væri ekki vegan myndi nenna að tékka á því. Ef það mistekst er planið að fara í skjóli nætur og hlaða þessu niður á allar tölvur sem við komumst í án þess að nokkur taki eftir því,“ segir Þórður aðspurður hvert markmiðið þeirra sé. „Fólk sem borðar kjöt býr í svo aftengdum raunveruleika. Eins og maturinn þinn sé ekki lík af dýri, heldur bara einhver óskilgreindur bragðgóður hlutur og það myndar ekki hugrenningatengslin á milli matarins og dýrsins. Nema náttúrulega einhverjar sjúkar veiðimannatýpur sem skjóta dýrið sjálfar. Það er annar handleggur. Tilgangurinn er að skapa þessi hugrenningatengsl hjá fólki sem leiðir ekki hugann að þessu í sínu daglega amstri,“ svarar Lóa og bætir við: „Draumur minn er að það verði til skynsamleg umræða um dýraafurðalausan lífsstíl. Fólki finnst þetta enn þá svo róttæk ákvörðun að kjósa þannig mataræði en það sem mér þykir mun róttækara er að ákveða að nokkur dýr þurfi að deyja bara svo að þú getir farið í gegnum daginn þinn.“Á planternative.com má bæði nálgast vafraviðbótina sem og meiri upplýsingar um verkefnið.
Mest lesið Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Lífið Jólatónleikar eru ekki tónlist. Þeir eru neyðaraðgerð Gagnrýni Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Tónlist Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Menning Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Lífið Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bíó og sjónvarp Heigulsleg ákvörðun Rúv, hörundsárir listamenn og versta bók flóðsins Menning Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Lífið Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Lífið Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Afsökunarbeiðni, fréttastef og blaðamannafundur Þetta gúggluðu Íslendingar á árinu Klámleikkona slapp með sekt og brottvísun Grunaði strax að ókunnugur maður væri faðir vinkonu sinnar Róbert hættur við að mæta í hlaðvarp vegna viðtals við Albert Sannir Finnar lýsa yfir stuðningi við slaufuðu fegurðardrottninguna Innlit í glænýja mathöll í Smáralindinni Hanskar Gunna Nels, árituð ManU-treyja og Elli Egils á uppboði Húsið fallega í Eyjum komið langt á veg Sigurvegari Eurovision skilar bikarnum Krökkt af kempum í útgáfuhófi Óla Jó Framkvæmdastjóri Eurovision bregst við ákvörðun Íslands Svipt krúnunni eftir að hafa gert sig skáeygða Spígsporandi górilla á fyndnustu dýralífsmynd ársins Tóku áskoruninni og Joey Christ sver af sér sviðsetningu Opnar sig loksins um sambandið umtalaða Þetta þykja flottustu jólaskreytingarnar í miðborginni Listaverkin í World Class sem gjarnan hafa verið á milli tannanna á fólki Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Sjö tilnefndir til Íslensku þýðingarverðlaunanna Stærstu stjörnubrúðkaupin á árinu Skorar HúbbaBúbba á hólm: „Sá sem tapar þarf að hætta að gefa út tónlist“ Fannar og Snorri slógust þar til þeir stóðu nánast naktir eftir Höfundur Kaupalkabókanna látinn „Myndi gjarnan vilja að barnið mitt færi líka í heimsókn í mosku“ Einn tenóranna þriggja með tónleika í Hörpu í mars Alltaf til í flipp en nennir ekki að borða vondan mat „Ég nenni ekki að hlusta á 7. október rökstuðninginn enn og aftur“ Einhentar íslenskar vinkonur: „Eins og við hefðum þekkst alla ævi“ Sungu um Labubu og þriðju vaktina um jólin Sjá meira