Kellyanne Conway, ráðgjafi Donald Trump Bandaríkjaforseta, notaði tækifærið í sjónvarpsviðtali við Fox News í dag og auglýsti fatalínu Ivönku Trump, dóttur forsetans, en verslunin Nordstrom tók línuna úr sölu á dögunum.
Conway ræddi við Fox frá Hvíta húsinu og sagði að neytendur ættu að fara út og kaupa fötin hennar Ivönku.
„Þetta er frábær lína. Ég á nokkrar flíkur úr henni og ég ætla bara að gefa ykkur fría auglýsingu hérna: Farið og kaupið þetta í dag, allir. Þið getið fundið vörurnar á netinu,“ sagði Conway.
Margir hafa sett spurningamerki við þessi orð Conway enda er opinberum starfsmönnum í Bandaríkjunum bannað með lögum að nota stöðu sína til þess að auglýsa hvers kyns vöru eða þjónustu.
Þannig hafa Demókratar kallað eftir því að þessi hegðun Conway verði rannsökuð en Sean Spicer, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, sagði í dag, spurður út í málið, að Conway hefði fengið ráðgjöf í kjölfar viðtalsins.
Ráðgjafi Trump auglýsti fatalínu Ivönku í sjónvarpsviðtali

Tengdar fréttir

Trump ósáttur við verslunarkeðju sem hætti að selja fatalínu Ivönku
Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi í dag verslunarkeðjuna Nordstrom sem hætt hefur við að selja fatalínu Ivönku Trump, dóttur forsetans

Nordstrom hættir að selja vörur Ivanka Trump
Forsetadóttirin fær að finna fyrir afleiðingum mikillar óánægju með faðir sinn.