Ísland einu sæti frá topp 20 á nýjum FIFA-lista en Lagerbäck niður fyrir Færeyjar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. apríl 2017 09:08 Vísir/Samsett/Getty
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta hækkar sig um tvö sæti á nýjum FIFA-lista sem var gefinn út í morgun. Norðmenn detta niður fyrir Færeyjar á fyrsta listanum eftir að Lars Lagerbäck stýrði norska landsliðinu í fyrsta sinn. Ísland er nú í 21. sæti listans en var í 23. sæti á listanum sem var gefinn út í mars. Íslenska liðið hóf nýtt ár í 21. sætinu en náði sínum besta árangri í sögunni þegar liðið sat í 20. sætinu á febrúarlistanum. Þetta er því næstbesti árangur íslenska karlalandsliðsins á styrkleikalista FIFA. Ísland kemst meðal annars aftur upp fyrir Holland sem fellur um heil ellefu sæti á listanum. Hollendingar eru núna í 32. sæti en voru einu sæti fyrir ofan Ísland á síðasta lista. Íslenska liðið er áfram langhæst af Norðurlandaþjóðunum en Svíarnir hoppa upp um ellefu sæti og nálgast. Svíþjóð er nú í 34. sæti eða þrettán sætum á eftir Íslandi. Danir lækka um þrjú sæti og detta út af topp 50. Þeir eru núna í 41. sæti. Færeyingar hækka sig um fimm sæti og er núna í fjórða sæti af Norðurlandaþjóðunum í 77. sæti. Lars Lagerback stýrði Norðmönnum í fyrsta sinn á dögunum en varð að sætta sig við 2-0 tap á móti Norður-Írlandi. Norska liðið lækkar um fimm sæti á listanum og er núna í 86. sæti. Brasilíumenn eru nú komnir aftur á toppinn eftir sjö ára fjarveru. Þeir hafa ekki verið á toppi FIFA-listans síðan sumarið 2010. Brasilía tók toppsætið af nágrönnum sínum í Argentínu en Þjóðverjar eru áfram í þriðja sætinu.Það má sjá allan listann með því að smella hér.
Fótbolti Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Þrjár opnunarhátíðir á HM og stórstjörnur á þeim öllum Grikkir gerðu Svíum grikk á lokasekúndum leiksins Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Óvíst hver tekur við af Schmeichel Sjá meira