Steggjunin sem endaði með fótbroti: Árni úr járni og Mjölnir sýknaðir í Hæstarétti Birgir Olgeirsson skrifar 6. apríl 2017 15:15 Árni Ísaksson, bardagakappi, fagnaði sigri í Hæstarétti í dag. Vísir/Valli
Hæstiréttur hefur sýknað bardagaíþróttafélagið Mjölni og bardagakappann Árna Ísaksson í máli sem fasteignasalinn Lárus Óskarsson höfðaði vegna fótbrots sem Lárus varð fyrir í steggjun sinni í húsakynnum Mjölnis í ágúst árið 2014. Lárus stefndi Mjölni og Árna og snerist málið um það hvort Mjölnir og Árni væru skaðabótaskyldir í málinu. Héraðdómur Reykjavíkur kvað upp dóm í málinu í mars í fyrra og komst að þeirri niðurstöðu að Mjölnir og Árni væru skaðabótaskyldir í málinu. Hæstiréttur var hins vegar á öndverðum meiði. Dóm Hæstaréttar má lesa hér. Í málinu krafðist Lárus viðurkenningar á því að Árni og Mjölnir bæru óskipta skaðabótaábyrgð á líkamstjóni sem hann sagðist hafa orðið fyrir þegar hann féll í glímu við Árna. Í dómi Hæstaréttar kom fram að gögn málsins og framburður aðila og vitna fyrir dómi bæri með sér að tilgangur þess að Lárus fór inn í bardagahringinn með Árna hefði ekki verið til kennslu í bardagaíþróttum heldur til þess að hafa mætti af því gaman fyrir viðstadda. Í dómnum kemur jafnframt fram að Lárus gerði sér grein fyrir því áður en hann gekk til leiksins að hin fyrirhuguðu glímutök krefðust líkamlegrar snertingar og að í slíkum átökum gætu menn slasast. Vísað var til þess að íslenskum rétti hefðu lengi gilt reglur um áhættutöku sem ættu sér ótvíræða stoð í dómaframkvæmd á sviði skaðabótaréttar.Úr húsakynnum Mjölnis.Vísir/Andri MarinóAð þessu gættu og með hliðsjón af myndskeiðum og framburði aðila fyrir dómi var talið að Láru hefði í upphafi leiksins fengið nokkrar leiðbeiningar frá Árna um það hvernig hann skyldi bera sig í leiknum og að Árni hefði við umrædda fellu borið sig í aðalatriðum eins að og í fyrri fellu. Samkvæmt þessu og þar sem Lárus byggði ekki á því að aðferð Árna við fyrri felluna eða verklag hefði verið rangt, yrði Árni ekki gerður ábyrgur fyrir afleiðingum þeirra meiðsla sem Lárus kvaðst hafa hlotið. Af þeirri niðurstöðu leiddi að ekki þurfti að taka afstöðu til hugsanlegrar ábyrgðar Mjölnis sem vinnuveitanda árna. Voru þeir því sýknaðir af kröfu Lárusar.Fótbrotinn á fimm mínútumVísir fjallaði ítarlega um aðalmeðferðina í málinu í mars í fyrra. Þar lýsti Lárus því hvernig atburðarásin hefði verið umræddan dag. Hann hefði mætt ásamt steggjunarhóp sínum í húsakynni Mjölnis þar sem Árni tók á móti honum og fór með hann í hringinn. Fimm mínútum eftir komuna var hann fótbrotinn. „Ég segi strax: Þú ert búinn að fótbrjóta mig,” rifjaði Lárus upp í skýrslutöku fyrir dómi. Hann sagði mikil læti og stemningu hafa verið í hópnum á þessum tíma og nokkrir þeirra gefið í skyn að það amaði ekkert að honum. Lárus sagði að Árni hefði sagt við sig að hann væri örugglega ekki brotinn en það hefði eitthvað skrýtið átt sér stað við felluna. Í kjölfarið var keyptur kælipoki fyrir Lárus og almennt talið að hann hefði tognað illa á ökkla. Lárus þurfti að fara í aðgerð vegna brotsins, fóru fjórar skrúfur og tveir naglar í ökklann á honum til að laga brotið. Fresta þurfti brúðkaupi hans um tvo mánuði og sagðist hann hafa verið frá vinnu í á þriðja mánuð.Lárus Óskarsson og lögmaður hans í dómsal í Héraðsdómi Reykjavíkur í fyrra. ErnirÓsjálfráð viðbrögð að stífna upp Árni bar því við að Lárus hefði, ólíkt því sem hann hefði verið beðinn um, streist á móti sem hefði orðið til þess að hann brotnaði. Lárus bar því hins vegar við að hann væri stirður að upplagi og ósjálfráð viðbrögð að stífna upp. Árni sagði fyrir dómi að um leiðindaóhapp hefði verið að ræða og hann hefði verið leiður yfir því. Hann bauðst því til að glíma við vini Lárusar á meðan Lárus sat hjá. Svo var stungið upp á því að Árni myndi taka Lárus í hengingartak fyrir steggjunarmyndbandið. Árni sagðist hafa spurt Lárus hvort hann væri viss og sagði hann Lárus hafa svaraði því játandi. Þrátt fyrir fótbrotið hélt steggjunin áfram og spilaði Lárus meðal annars á saxófón við Ingólfstorg þar sem hann sést á myndbandi stíga í fótinn.Sársaukinn mismunandi eftir kælingu Var um það deilt hvort Lárus hefði getað stigið í fótinn á þeim tíma en hann sást ganga um með saxófóninn á Ingólfstorgi. Lárus sagði að hann hefði átt í miklum erfiðleikum með það og sársaukinn hefði verið mismunandi mikill, eftir því hvernig kælingunni leið. Að öðru leyti hefði hann þurft að styðja sig við, hoppa um á öðrum fæti eða hreinlega að láta bera sig. „Það er hægt að spyrja hvern sem er að því, það er ekki eins og ég hafi verið hlaupandi um á löppinni,” sagði Lárus. Hann frestaði því að leita til læknis þar til daginn eftir þar sem löng bið var á bráðamóttöku Landspítalans þegar hann hélt þangað um kvöldið.
Tengdar fréttir Lögmaður Árna og Mjölnis: Steggurinn tók vissa áhættu með því að stíga inn í hringinn Fasteignasalinn Lárus Óskarsson fótbrotnaði í steggjun þegar hann mætti Árna Ísaksyni í bardagahring í Mjölni. Vill að héraðsdómur viðurkenni skaðabótakröfu hans. 21. apríl 2015 11:53 Fasteignasali hafði betur gegn Árna úr járni og Mjölni Lárus Óskarsson getur farið í skaðabótamál við Árna Ísaksson og Mjölni. 22. mars 2016 14:23 Afdrifarík steggjun í Mjölni fyrir dóm: „Þú ert búinn að fótbrjóta mig“ Lárus Óskarsson stefndi Mjölni og Árna Ísakssyni eftir að hafa fótbrotnað í steggjun í Mjölni. 10. mars 2016 17:00 Hefur stefnt bardagamanni og Mjölni eftir steggjun Fótbrotnaði í átökum við Árna Ísaksson í húsakynnum Mjölnis. 20. apríl 2015 22:02 Mest lesið Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Innlent Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Innlent Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Erlent Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Innlent „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Erlent Fleiri fréttir Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Stillir sér upp á miðjunni Mikill meirihluti vill banna sölu á orkudrykkjum til barna Fimm sóttir upp á Fjarðarheiði í nótt Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Sjá meira
Lögmaður Árna og Mjölnis: Steggurinn tók vissa áhættu með því að stíga inn í hringinn Fasteignasalinn Lárus Óskarsson fótbrotnaði í steggjun þegar hann mætti Árna Ísaksyni í bardagahring í Mjölni. Vill að héraðsdómur viðurkenni skaðabótakröfu hans. 21. apríl 2015 11:53
Fasteignasali hafði betur gegn Árna úr járni og Mjölni Lárus Óskarsson getur farið í skaðabótamál við Árna Ísaksson og Mjölni. 22. mars 2016 14:23
Afdrifarík steggjun í Mjölni fyrir dóm: „Þú ert búinn að fótbrjóta mig“ Lárus Óskarsson stefndi Mjölni og Árna Ísakssyni eftir að hafa fótbrotnað í steggjun í Mjölni. 10. mars 2016 17:00
Hefur stefnt bardagamanni og Mjölni eftir steggjun Fótbrotnaði í átökum við Árna Ísaksson í húsakynnum Mjölnis. 20. apríl 2015 22:02