Sendi afsökunarbeiðni til óléttrar eiginkonu sinnar og barna vegna framhjáhalds Anton Egilsson skrifar 17. september 2017 10:25 Kevin Hart og eiginkona hans, Eniko Parrish, tilkynntu í maí að þau ættu von á sínu fyrsta barni. Instagram
Bandaríski leikarinn Kevin Hart sendi í gær frá sér afsökunarbeiðni til óléttrar eiginkonu sinnar og tveggja barna í kjölfar þess að fregnir bárust af meintu framhjáhaldi hans. Í myndskeiði sem Hart birti á Instagram síðu sinni segist hann hafa sýnt af sér slæma dómgreind og biðst innilegrar afsökunar á gjörðum sínum. Hinn 38 ára gamli Hart er einn vinsælasti grínleikari heims en hann hefur leikið í myndum á borð við Ride Along, The Wedding Ringer og Get Hard. Hann hefur verið kvæntur Eniko Parrish frá árinu 2016 en í maí tilkynntu hjónakornin að þau ættu von á sínu fyrsta barni. Þá á Hart tvö börn frá fyrra hjónabandi þau Heaven og Hendrix Hart. Afsökunarbeiðnin kemur í kjölfar þess að nokkrum myndskeiðum af Hart og annarri konu var lekið á netið að því er fram kemur á E Online. Ekki er um kynlífsmyndbönd að ræða en Hart og konan eiga þó að hafa verið ansi innileg hvort við annað. Á konan að hafa tekið umrædd myndskeið upp. „Ég kom sjálfum mér í aðstæður þar sem aðeins slæmir hlutir geta gerst, og þeir gerðust. Með því að gera það þá vissi ég að ég myndi særa þá sem standa mér næst, eiginkonu mína og börnin mín,“ sagði Hart dapur í bragði. Þá á konan að hafa reynt að kúga út úr honum fé vegna myndskeiðanna en hann segist ekki hafa viljað ganga að því. „Ég ætla ekki að leyfa öðrum að hagnast fjárhagslega á mínum mistökum.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem umræða um meint framhjáhald Hart kemst í heimspressuna en í júlí síðastliðnum fór af stað orðrómur um framhjáhald kappans eftir að myndir birtust af honum og óþekktri konu saman í bíl. Hart gerði þó lítið úr þeim orðrómi og þvertók fyrir að um framhjáhald hefði verið að ræða. Sending so many apologies to my wife & kids. I gotta do better and I will. I'm not perfect and have never claimed to be ...I love you all. A post shared by Kevin Hart (@kevinhart4real) on Sep 16, 2017 at 4:07pm PDT
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Sjá meira