Ofurparið Tanja og Egill blogga um ferðalögin sín og lífstíl Stefán Árni Pálsson skrifar 2. febrúar 2017 12:30 Það er mikið fjör í kringum þessi tvö.
Athafnakonan Tanja Ýr Ástþórsdóttir, sem var kosin ungfrú Ísland árið 2013, og Egill Halldórsson, eigandi viðburðarfyrirtækisins Wake up Reykjavík, halda bæði úti ferðabloggsíðu þar sem þau sýna frá ferðalagi þeirra beggja en Tanja og Egill eru í sambandi. Þau fóru á dögunum til Marokkó og ætla síðan að halda áfram að segja frá ferðalögum sínum. Tanja er nokkuð stór í snyrtivörubransanum og heldur úti sínu eigin fyrirtæki. „Til að byrja með langaði mig rosalega mikið að vera með stærri „platform” þar sem ég gæti deilt mínum persónulegu ráðum varðandi hitt og þetta, yfirleitt tengt snyrtivörum, tísku og einhverju í þá áttina. Í dag hins vegar hefur þetta stækkað alveg mjög mikið og snýst fyrst og fremst um ferðalög, lífsstíl og snyrtivörur.“ Hún segist nota Snapchat og Instagram daglega og en finnst einnig mikilvægt að eiga bloggið líka. „Þar get ég komið ítarlegra inn á hlutina sem mér finnst mikilvægir og þá er líka alltaf hægt að finna það - Annað en á samskiptamiðlunum þar sem það getur verið erfitt að finna gamla pósta - eða hreinlega ómögulegt eins og á Snapchat.“ Egill er nokkuð sammála kærustunni. „Hingað til hef ég verið að hjálpa erlendum ferðamönnum að upplifa Reykjavík á sem skemmtilegastan hátt - en hugmyndin að þessu glænýja bloggi er einfaldlega að sameina ástríðu mína fyrir því að skrifa texta, ásamt því að ferðast um heiminn jafnt sem landið okkar og upplifa öðruvísi mat og drykk.“ Hann hefur umgengist ferðamenn núna nánast daglega í nokkur ár og gerir sér grein fyrir því hversu mikilvægt það er að fá góð ráð. „Markmiðið er því að gefa góð persónuleg meðmæli hvort sem það er varðandi ferðalög eða veitingastaði hér í Reykjavík til dæmis - Og auðvitað hafa ótrúlega gaman að því á meðan,“ segir Egill sem var að byrja sjálfur að blogga og mun halda því áfram á næstunni.
Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Patrick Stewart látinn Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira