Markakóngur annað árið í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. maí 2017 07:00 Harry Kane skoraði sjö mörk í síðustu tveimur leikjum tímabilsins. vísir/getty
Harry Kane skoraði þrennu þegar Tottenham rústaði Hull City, 1-7, í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Það er óhætt að segja að Kane hafi klárað tímabilið með stæl. Hann skoraði fernu í 1-6 sigri Tottenham á Leicester City á fimmtudaginn og skoraði því sjö mörk í síðustu tveimur leikjum tímabilsins. Kane tryggði sér gullskóinn með þessum magnaða endaspretti á tímabilinu. Hann skoraði alls 29 mörk í 31 deildarleik, fjórum mörkum meira en Romelu Lukaku hjá Everton. Arsenal-maðurinn Alexis Sánchez varð þriðji með 24 mörk. Kane varð einnig markakóngur í fyrra en þá skoraði hann 25 mörk. Hann varð þar með fyrsti Englendingurinn sem verður markakóngur tvisvar í röð síðan Michael Owen afrekaði það tímabilin 1997-98 og 1998-99. Kane hefur núna skorað 76 mörk í 116 leikjum í ensku úrvalsdeildinni sem er frábær árangur.Stóru málin eftir helgina í enska boltanumStærstu úrslitin Liverpool tryggði sér Meistaradeildarsæti með 3-0 sigri á Middlesbrough. Það tók Liverpool tíma að brjóta Boro á bak aftur en eftir mark Georginios Wijnaldum í uppbótartíma fyrri hálfleiks var aldrei spurning hvorum megin sigurinn myndi enda.Hvað kom á óvart? Bournemouth lyfti sér upp í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 1-1 jafntefli við Leicester City. Frábær niðurstaða fyrir Eddie Howe og félaga. Bournemouth var farið að nálgast fallsvæðið en gaf síðan hressilega í síðustu vikur tímabilsins og tapaði aðeins tveimur af síðustu 12 leikjunum.Mestu vonbrigðin Hull kvaddi ensku úrvalsdeildina í bili með niðurlægjandi 1-7 tapi fyrir Tottenham á heimavelli. Tígrarnir voru á góðri leið með að bjarga sér en gáfu mikið eftir á lokasprettinum og enduðu á því að falla í þriðja sinn á síðustu átta árum. Hull er því enn og aftur komið á byrjunarreit.
Enski boltinn Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Argentína - Sviss | Hverjir fá síðasta farseðilinn? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira