Svíar prófa kynjaskipta bekki: Foreldrar og nemendur ekki sáttir nína hjördís þorkelsdóttir skrifar 15. janúar 2017 18:43 Myndin tengist fréttinni ekki beint. vísir/getty
Grunnskólinn Adolfsbergskolan í Svíþjóð hefur nú skipt börnum upp í bekki eftir kyni. Um tímabundna tilraun er að ræða en markmiðið með henni er meðal annars valdefling stúlkna. Sænski miðillinn The Local greinir frá þessu. Tilraunin á að standa yfir í sex vikur og hófst þegar skóli var settur eftir áramót. Í kjölfarið sendu skólayfirvöld foreldrum barnanna bréf þar sem greint var frá því tilrauninni. Börnin eru í níunda bekk. Anneli Widestrand, skólastjóri Adolfsbergskolan, sagði í samtali við fjölmiðla að reynsla sín hefði kennt sér að sumar stúlkur þyrðu ekki að láta í sér heyra í kennslustofunni þegar þær væru í blönduðum bekkjum. „Ég tel að þetta sé góð leið til þess að brjótast út úr ákveðnu mynstri og ná til nemendanna,“ sagði hún.Foreldrar og nemendur ósáttirSamkvæmt sænskum fjölmiðlum eru nemendur skólans ekki ánægðir með þetta tímabundna fyrirkomulag. Foreldrar hafa jafnframt margir hverjir lýst yfir óánægju sinni. „Fólk er óánægt og í uppnámi. Við höfum lýst yfir efasemdum okkar og nemendur skólans hafa meðal annars skrifað um þetta á Instagram. Við höfum vakið máls á þessu en þeir [skólayfirvöld] segja einfaldlega að sumum stúlkum þyki erfitt að halda fyrirlestra í návist drengja,“ sagði Beata Ejdeholt sem er nemandi í skólanum. Frá árinu 1974 hafa engir sérstakir stúlkna- og drengjaskólar verið starfræktir í Svíþjóð. Bekkir í grunnskólum þar í landi eru yfirleitt blandaðir, ekki kynjaskiptir.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Sjá meira