Ástralía: Móðir viðurkennir að hafa banað þremur börnum sínum Atli Ísleifsson skrifar 16. janúar 2017 11:30 Vitni segjast hafa heyrt Akon Guode segjast ætla að drepa börn sín sama dag og þau drukknuðu.
37 ára kona hefur viðurkennt að hafa banað þremur börnum sínum með því að aka bíl út í stöðuvatn í suðurhluta Ástralíu árið 2015. Í frétt BBC segir að Akon Guode hafi viðurkennt að hafa drepið eins árs son sinn, Bol, og fjögurra ára tvíbura, Hanger og Madit, en hin sex ára Alual, sem einnig var í bílnum, slapp lifandi. Guode játaði sekt sína fyrir dómi í morgun, en hún hafði áður neitað sök í yfirheyrslum hjá lögreglu. Við rannsókn málsins og við réttarhöldin hefur Guode notið aðstoðar túlks en hún kom til Ástralíu frá Suður-Súdan árið 2008. Joseph Manyang, faðir barnanna, sagði við yfirheyrslu á síðasta ári að Guode hafi fundið fyrir svima áður en bíllinn fór út í vatnið. Sagði hann útilokað að hún hafi ætlað sér að skaða börn sín viljandi. Vitni segjast þó hafa heyrt Guode segjast ætla að drepa börn sín sama dag og þau drukknuðu. Vegfarendur reyndu eins og þeir gátu að bjarga börnunum eftir að bíllinn fór út í Lake Gladham vatnið í Wyndham Vale og tókst þá að bjarga þeim Alual og Guode. Réttarhöldum verður fram haldið þann 31. janúar. Sjá má innslag áströlsku stöðvarinnar 7 News um málið að neðan.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Sjá meira