Liverpool gæti þurft að borga 50 milljónir punda fyrir Keita Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. maí 2017 11:30 Það vantaði ekki orkuna í Naby Keita á síðustu leiktíð. vísir/getty
Liverpool gæti reynst erfitt að kaupa Gíneamanninn Naby Keita frá RB Leipzig í sumar þar sem þýska félagið ætlar að berjast með kjafti og klóm fyrir því að halda sínum bestu mönnum hjá félaginu. Sky Sports greinir frá. Keita sló í gegn á sinni fyrstu leiktíð í þýsku 1. deildinni í vetur en hann skoraði átta mörk í 29 leikjum er moldríkir nýliðar Leipzig, styrktir af orkudrykkjaframleiðandanum Red Bull, náðu öðru sæti deildarinnar á sinni fyrstu leiktíð í deild þeirra bestu. Miðjumaðurinn kom til Leipzig frá Red Bull Salzburg fyrir síðustu leiktíð en Jürgen Klopp er sagður mikill aðdáandi leikmannsins sem er 22 ára gamall og á að baki 19 landsleiki fyrir Gíneu. „Við höfum ákveðið að selja enga byrjunarliðsmenn. Ralf Rangnick [yfirmaður fótboltamála hjá Leipzig] sagði leikmönnunum þetta eftir tímabilið. Við munum halda liðinu saman og halda áfram að þróast,“ segir Oliver Mintzlaff, framkvæmdastjóri RB Leipzig, í viðtali við The Times. Fram kemur í frétt Sky Sports að Leipzig sé aðeins tilbúið að hlusta á tilboð yfir 50 milljónir punda fyrir Keita en talið er að miðvörðurinn Virgil van Dijk, leikmaður Southampton, gæti kostað það sama. Liverpool er einnig spennt fyrir honum sem og fleiri félög.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Sjá meira