Klopp: Sturridge hefur ekki náð að mæta á nærri því allar æfingar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2016 18:15 Daniel Sturridge og Jürgen Klopp. Vísir/Getty
Daniel Sturridge verður ekki með Liverpool-liðinu á móti Stoke í undanúrslitum enska deildabikarsins í vikunni. Hann er orðinn góður af meiðslunum en er ekki í nógu góðu formi. Knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp staðfesti þetta á blaðamannafundi í dag og fór um leið yfir stöðu mála hjá enska landsliðsframherjanum. Liverpool hefur verið í miklum framherjavandræðum og er bara búið að skora 22 mörk í 20 leikjum. Eins og staðan er nú þá er Christian Benteke eini framherjinn sem er heill en Sturridge, Divock Origi og Danny Ings eru allir á sjúkralistanum. Daniel Sturridge spilaði síðast í 2-0 tapi á móti Newcastle 6. desember en hefur náð sér af meiðslum aftan í læri. Klopp mun hinsvegar ekki nota Sturridge fyrr en hann er búinn að ná góðri æfingalotu. „Kannski hafið þið það á tilfinningunni að Daniel sé búinn að æfa með okkur undanfarnar þrjár vikur og sé að komast í betra form á hverjum degi. Það er samt ekki þannig," sagði Jürgen Klopp. „Daniel er búinn að vera að glíma við smá vandamál á þessum tíma, ekkert alvarlegt en nógu slæmt til þess að hann hefur misst úr æfingar vegna þeirra. Þegar hann hefur náð mörgum æfingum í röð þá mun ég velja hann í liðið," sagði Klopp og bætti við: „Ég verð fyrstur til að taka hann inn þegar hann er klár. Ég ætla ekki að halda aftur af honum. Það væri vissulega auðvelt fyrir mig að freistast til þess að taka hann inn af því að okkur vantar mörk en við verðum að vera þolinmóðir," sagði Klopp. Daniel Sturridge hefur ekki náð fullu undirbúningstímabili síðan 2011 og hefur misst af stórum hluta síðustu tveggja tímabila. Hvort plan Klopp finnur góðan endi á meiðslasögunni miklu verður að koma í ljós en Sturridge verður allavega ekki með á móti Stoke á Britania-leikvanginum annað kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Fótbolti Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Fleiri fréttir Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Sjá meira