Ferja sjúklinga milli bygginga spítalans Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar 15. ágúst 2016 08:00 Sjúklingar á Landspítala Fossvogi sem þarfnast myndgreiningarrannsókna þurfa að fara í sjúkrabíl á Landspítala við Hringbraut. Visir/Stefán
Sjúklingar á Landspítala í Fossvogi sem hafa þarfnast myndgreiningarrannsókna hafa orðið fyrir miklum óþægindum í ágústmánuði. Annað af tveimur segulómtækjum Landspítalans hefur ekki verið í notkun. Sjúklingana þarf því að ferja með sjúkrabílum til rannsókna á Landspítala við Hringbraut, af öllum deildum spítalans, einnig bráðadeild. Pétur Hannesson, yfirlæknir myndgreiningardeildar, segir uppfærsluna vera tímafreka en nauðsynlega. „Tækið er í uppfærslu og verður sem nýtt, það er í raun rifið í sundur og sett saman aftur. Uppfærslan tekur um mánuð,“ segir Pétur. Segulómtækið á Landspítalanum í Fossvogi er níu ára gamalt og tækið við Hringbraut var keypt fyrir ellefu árum. Pétur segir að innan myndgreiningardeildar hafi verið unnið að því að uppfærslan gangi eins vel og kostur er á. „Uppfærslan er nauðsynleg og var skipulögð langt fram í tímann. Við ákváðum að gera uppfærsluna á hásumartíma því þá er minna streymi af göngudeildarsjúklingum á spítalann. Okkur hafði einnig tekist að vinna niður biðlista í sumarbyrjun og staðan var því ágæt,“ segir hann. Pétur segir sjúkrabíla fara á hverjum degi á milli bygginga með sjúklinga til rannsókna. „Það eru farnar ferðir á sjúkrabílum á hverjum degi frá Fossvogi á Hringbraut og svo aftur til baka. Það hefur vissulega nokkur óþægindi í för með sér fyrir sjúklinga, en tækið verður mjög líklega tilbúið í síðustu viku ágústmánaðar.“ Að uppfærslunni lokinni segir Pétur tækið bæði verða öflugra og betra. Segulómtækin verða, að sögn Péturs, bilanagjarnari með tímanum ef það er ekki eru gerðar á þeim uppfærslur. „En þetta eru góð tæki sem duga mjög vel,“ ítrekar hann og segir að eftir uppfærsluna á segulómtækinu á Landspítalanum við Hringbraut hafi verið lítið um bilanir. Hann segir þó þörf á þriðja segulómtækinu. Tvö tæki séu ekki nóg og í nútíma læknavísindum reiði menn sig í auknum mæli á myndgreiningar. „Við höfum þörf fyrir þriðja tækið því eftirspurn eftir myndgreiningum er meiri og meiri.“Fréttin birtist upphaflega í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira