Innlent

Ferja sjúklinga milli bygginga spítalans

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Sjúklingar á Landspítala Fossvogi sem þarfnast myndgreiningarrannsókna þurfa að fara í sjúkrabíl á Landspítala við Hringbraut.
Sjúklingar á Landspítala Fossvogi sem þarfnast myndgreiningarrannsókna þurfa að fara í sjúkrabíl á Landspítala við Hringbraut. Visir/Stefán
Sjúklingar á Landspítala í Fossvogi sem hafa þarfnast myndgreiningarrannsókna hafa orðið fyrir miklum óþægindum í ágústmánuði.

Annað af tveimur segulómtækjum Landspítalans hefur ekki verið í notkun. Sjúklingana þarf því að ferja með sjúkrabílum til rannsókna á Landspítala við Hringbraut, af öllum deildum spítalans, einnig bráðadeild.

Pétur Hannesson, yfirlæknir myndgreiningardeildar, segir uppfærsluna vera tímafreka en nauðsynlega.

„Tækið er í uppfærslu og verður sem nýtt, það er í raun rifið í sundur og sett saman aftur. Uppfærslan tekur um mánuð,“ segir Pétur.

Segulómtækið á Landspítalanum í Fossvogi er níu ára gamalt og tækið við Hringbraut var keypt fyrir ellefu árum. Pétur segir að innan myndgreiningardeildar hafi verið unnið að því að uppfærslan gangi eins vel og kostur er á.

„Uppfærslan er nauðsynleg og var skipulögð langt fram í tímann. Við ákváðum að gera uppfærsluna á hásumartíma því þá er minna streymi af göngudeildarsjúklingum á spítalann. Okkur hafði einnig tekist að vinna niður biðlista í sumarbyrjun og staðan var því ágæt,“ segir hann.

Pétur segir sjúkrabíla fara á hverjum degi á milli bygginga með sjúklinga til rannsókna. „Það eru farnar ferðir á sjúkrabílum á hverjum degi frá Fossvogi á Hringbraut og svo aftur til baka. Það hefur vissulega nokkur óþægindi í för með sér fyrir sjúklinga, en tækið verður mjög líklega tilbúið í síðustu viku ágústmánaðar.“ Að uppfærslunni lokinni segir Pétur tækið bæði verða öflugra og betra.

Segulómtækin verða, að sögn Péturs, bilanagjarnari með tímanum ef það er ekki eru gerðar á þeim uppfærslur.

„En þetta eru góð tæki sem duga mjög vel,“ ítrekar hann og segir að eftir uppfærsluna á segulómtækinu á Landspítalanum við Hringbraut hafi verið lítið um bilanir.

Hann segir þó þörf á þriðja segulómtækinu. Tvö tæki séu ekki nóg og í nútíma læknavísindum reiði menn sig í auknum mæli á myndgreiningar.

„Við höfum þörf fyrir þriðja tækið því eftirspurn eftir myndgreiningum er meiri og meiri.“

Fréttin birtist upphaflega í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×