Ævintýri Dundalk heldur áfram | Sló út BATE Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. ágúst 2016 21:00 Dundalk-menn fagna sigrinum á FH. vísir/eyþór
Írska liðið Dundalk komst í kvöld áfram í lokaumferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu með ótrúlegum sigri á BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi, 3-0 í kvöld og 3-1 samanlagt. Ævintýri írska liðsins heldur því eitthvað áfram en liðið er nú aðeins einu skrefi frá því að tryggja sér sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. En það sem meira er að liðin sem tapa í lokaumferðinni fá sæti í riðlakeppni Evrópudeildar UEFA og því ljóst að Dundalk á fjölmarga leiki eftir í Evrópukeppni þetta tímabilið. Dundalk sló FH úr leik í síðustu umferð eftir æsispennandi leik í Kaplakrika sem lauk með 2-2 jafntefli. Samanlögð úrslit voru 3-3 en Dundalk komst áfram á útivallamarkareglunni. Það var David McMillan sem skoraði öll þrjú mörk Íranna í rimmunni gegn FH og hann var ekki hættur í kvöld. Hann kom Dundalk í 2-0 forystu með mörkum á 44. og 59. mínútu en Robert Benson bætti því þriðja við undir lok leiksins. Ekki liggur fyrir hvaða liði Dundalk mætir í lokaumferð forkeppninnar en dregið verður á föstudaginn. Plzen frá Tékklandi, APOEL frá Kýpur, Dinamo Zagreb frá Króatíu og Ludogorets frá Búlgaríu komust einnig áfram í lokaumferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Fótbolti Tengdar fréttir Norsku meisturunum slátrað í uppbótartíma Náðu að halda markinu hreinu þar til í uppbótartíma en þá skoruðu Kýpverjarnir þrjú mörk og gerðu út um Meistaradeildardraum Rosenborg. 2. ágúst 2016 19:00 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Fleiri fréttir Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira
Norsku meisturunum slátrað í uppbótartíma Náðu að halda markinu hreinu þar til í uppbótartíma en þá skoruðu Kýpverjarnir þrjú mörk og gerðu út um Meistaradeildardraum Rosenborg. 2. ágúst 2016 19:00