Barcelona aftur á toppinn | Sama atburðarrás og síðasta laugardag Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. apríl 2016 20:15 Suárez hefur skorað níu mörk í síðustu þremur leikjum Barcelona. Vísir/Getty
Barcelona endurheimti toppsætið í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta með 0-2 útisigri á Real Betis í kvöld. Líkt og síðasta laugardag voru Real Madrid, Atlético Madrid og Barcelona á einhverjum tímapunkti á toppi deildarinnar í dag. Real Madrid fór á toppinn í tvo klukkutíma eftir 0-1 sigur á Real Sociedad á útivelli áður en nágrannarnir í Atlético Madrid tóku það af þeim með 1-0 sigri á Rayo Vallecano. En líkt og síðasta laugardag endar Barcelona daginn í toppsætinu. Eftir þrjá tapleiki í röð hafa Börsunga unnið síðustu þrjá leiki sína með markatölunni 16-0. Það tók spænsku meistarana 50 mínútur að brjóta ísinn gegn Betis sem missti Heiko Westermann af velli með rautt spjald á 35. mínútu. Ivan Rakitic skoraði fyrra mark Barcelona og níu mínútum fyrir leikslok bætti Luís Suárez öðru marki við. Lionel Messi lagði upp bæði mörk Börsunga í kvöld. Barcelona er með 85 stig á toppi deildarinnar þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Atlético Madrid er með jafn mörg stig en Börsungar eru ofar í töflunni sökum betri árangurs í innbyrðis viðureignum liðanna. Real Madrid er svo í 3. sætinu með 84 stig.
Spænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira