Lík fyrrverandi Póllandsforseta fjarlægt og verður krufið Atli Ísleifsson skrifar 14. nóvember 2016 23:44 Líkin voru flutt úr steinkistunni í Wawel-dómkirkjunni í Krakow í kvöld. Vísir/EPA
Líkamsleifar Lech Kaczynski, fyrrverandi Póllandsforseta, og Maríu, eiginkonu hans, voru fjarlægðar úr kistum sínum í kvöld og verða líkin krufin í tengslum við rannsókn á flugslysinu í Smolensk árið 2010 þar sem þau hjónin fórust ásamt 92 til viðbótar. Líkin voru flutt úr kistum sínum í Wawel-dómkirkjunni í Krakow. Saksóknarar segja frekari rannsóknir á líkunum nauðsynlegar til að tryggja að raunverulega sé um forsetahjónin fyrrverandi að ræða. Segja þeir villur hafa verið gerðar við upphaflegu réttarkrufninguna sem Rússar framkvæmdu.Í frétt BBC kemur fram að rannsóknir sem framkvæmdar voru fyrir fjórum árum hafi leitt í ljós að lík sumra fórnarlamba hafi verið grafin í gröfum sem ekki voru rétt merktar. Saksóknarnar vonast til þess að ný krufning geti gefið vísbendingar um hvað raunverulega grandaði vélinni. Fyrri rannsóknir hafa bent til þess að flugmönnum vélarinnar hafi orðið á mistök við lendingu. Jaroslaw Kaczynski, þáverandi forsætisráðherra og tvíburabróðir Lech, hefur þó aldrei sætt sig við niðurstöður rannsóknanna og telur að sprengjur hafi sprungið um borð í vélinni áður en hún brotlenti. Hann er núverandi leiðtogi stjórnarflokks Póllands. Vél Lech Kaczynski hrapaði í mikilli þoku skammt frá flugbrautinni á gömlum herflugvelli í rússnesku borginni Smolensk þann 10. apríl 2010. Forsetinn var þá ásamt öðrum háttsettum mönnum innan pólska stjórnkerfisins á leið til athafnar til að minnast þess að sjötíu ár væru liðin frá fjöldamorðinu í Katyn þar sem sovéskir hermenn bönuðu um 20 þúsund Pólverjum. Þessar nýju rannsóknir eru í meira lagi umdeildar og hafa aðstandendur sumra fórnarlamba ekki gefið leyfi fyrir því að líkamsleifarnar séu grafnar upp. Kannanir benda til að um fjórðungur Pólverja telji að Kaczynski hafi verið ráðinn af dögum.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira