Sænskur fréttamaður fyrir dóm eftir að hafa smyglað dreng til landsins 17. nóvember 2016 21:06 Smygl á fólki til Svíþjóðar hefur margfaldast að undanförnu. vísir/epa
Sænski fréttamaðurinn Fredrik Önnevall hefur verið ákærður af þarlendum yfirvöldum fyrir að hafa smyglað sýrlenskum dreng til Svíþjóðar í maí 2014. Tveir samstarfsfélagar hans eru ákærðir fyrir að hafa aðstoðað Önnevall, en mennirnir þrír gætu átt yfir höfði sér þriggja mánaða fangelsi. Þeir munu mæta fyrir dóm á næstu dögum. Önnevall, sem starfar hjá sænska ríkisútvarpinu SVT, hafði verið að taka upp heimildarmynd um viðbrögð evrópskra stjórnvalda við flóttamannavandanum í álfunni þegar hann hitti piltinn, hinn 15 ára Abed í Grikklandi. Önnevall segir drenginn hafa grátbeðið um aðstoð og því hafi hann ekki séð annan kost í stöðunni en að verða við beiðni drengsins. „Ég sé ekki eftir neinu. Ég veit hvað við gerðum og ég myndi gera það nákvæmlega sama í dag,” sagði Önnevall í samtali við SVT. „Hvernig get ég séð eftir því að hafa hjálpað óttaslegnum dreng sem grátbað um aðstoð mína?” Önnevall hefur lýst yfir sakleysi sínu, því hann segist trúa því að hann hafi ekkert rangt gert, þrátt fyrir andstæðar fullyrðingar ríkissaksóknara. Haft er eftir ríkissaksóknara í Svíþjóð að þremenningarnir hefðu brotið lög með því að aðstoða útlending við að komast frá öðru landi, Grikklandi, til Svíþjóðar, þrátt fyrir að hafa haft vitneskju um það að aðilinn væri án vegabréfs og dvalarleyfis í Svíþjóð. Önnevall segir að ekki sé um smygl að ræða, enda hafi hvorki hann né samstarfsfélagar hans þegið peninga fyrir að koma Abed til landsins. Ekki fylgir sögunni í sænskum fjölmiðlum hvar Abed er staddur í dag.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira