Erlent

73 fórust þegar olíuflutningabíll sprakk í Mósambik

Atli ísleifsson skrifar
Auk þeirra sem létust þá slösuðust 110 manns til viðbótar.
Auk þeirra sem létust þá slösuðust 110 manns til viðbótar. Vísir/AFP
Að minnsta kosti 73 manns fórust þegar olíuflutningabíll sprakk í Mósambik, nærri landamærunum að Malaví, í dag.

Sprengingin varð þegar hópur fólks hafði safnast saman til að ná í eldsneyti hjá bíl sem hafði oltið á veginum. Auk þeirra sem létust þá slösuðust 110 manns til viðbótar.

Talsmaður yfirvalda segir ekki ljóst að svo stöddu hvað nákvæmlega olli því að sprengingin varð, en bíllinn var að flytja eldsneyti frá hafnarborginni Beira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×