Einn látinn eftir skotárásir í Malmö Díana Sjöfn Jóhannsdóttir skrifar 3. nóvember 2016 11:19 Lögreglan rannsakar málin sem aðskilin. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/AFP
Ungur maður lést eftir skotárás í suðurhluta Malmö í Svíþjóð í gærkvöldi en tilkynnt var um tvær árásir í borginni. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en lést síðar um kvöldið af völdum sára sinna. Í frétt SVT kemur fram að maðurinn hafi verið á tvítugsaldri og búið í Malmö. Fyrr um kvöldið hafði verið tilkynnt um aðra skotárás í nágrenninu en árásirnir tvær áttu sér stað með einungis nítján mínútna millibili. Fórnarlamb fyrri skotárásinnar er í aðhlynningu á sjúkrahúsi í Malmö. Tilkynning um fyrstu skotárásina kom inn til lögreglu klukkan 21:42 að sænskum tíma, þar sem tilkynnt var um særðan mann á Fosievägen í suðurhluta borgarinnar. Maðurinn, sem var á sautjánda ári, var fluttur á sjúkrahús með skotsár og voru tæknimenn lögreglu kallaðir á vettvang til rannsóknar. Klukkan 22:01 kom svo tilkynning um skotbardaga á Annenlundsgötu í Rosengård hverfi, í einungis þriggja kílómetra fjarlægð frá fyrri árásinni, þar sem skotið hafi verið á tvítugan mann og félaga hans. Þegar lögregla kom á síðari vettvang voru gerðar endurlífgunartilraunir, en maðurinn var úrskurðaður látinn þegar hann hafði verið fluttir á sjúkrahús. Maðurinn og félagar hans hafa allir komist í kast við lögin áður. Lögregla hefur handtekið þrjá menn sem hún telur tengjast fyrri árásinni á Fosievägen. Samkvæmt lögreglustjóranum Magnus Lefévre rannsakar lögreglan málin sem aðskilin þar sem ekkert bendir til að málin tengist á nokkurn hátt þrátt fyrir tímasetningarnar. Enginn hefur enn verið handtekinn vegna síðari árásarinnar þar sem maðurinn lést. Ekki fæst upp gefið hvort einhverjir liggi undir grun á þessu stigi málsins.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Sjá meira