Ástæða til að skoða lóðrétt stjórnskipulag í heilbrigðiskerfinu Heiðar Lind Hansson skrifar 16. september 2016 07:00 Birgir Jakobsson, landlæknir. vísir/stefán
Í skýrslu McKinsey & Company um Landspítalann sem kynnt var í síðustu viku er lagt til að stjórnvöld kanni fýsileika þess að koma upp svonefndu lóðréttu stjórnskipulagi í íslensku heilbrigðiskerfi. Um róttæka tillögu er að ræða, en hún felur í sér að Landspítalinn, heilsugæslan, öldrunarþjónustan og heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni lúti einni sameiginlegri stjórn. Skýrsluhöfundar telja að sökum smæðar landsins ætti slík stjórnun að vera viðráðanleg og auðveld í innleiðingu og skapa ábata fyrir samfélagið. Bæði Birgir Jakobsson landlæknir og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, telja fulla ástæðu til að kanna tillöguna vel, en þeir segjast almennt ánægðir með skýrsluna og tillögur hennar. Að sögn Birgis yrði meiriháttar breyting með lóðréttu stjórnskipulagi sem gæti tekið nokkur ár að framkvæma. Í slíku kerfi vinnur skipulagið út frá starfsemi en ekki stofnunum. „Það er ekki galið að kíkja á þennan möguleika þegar til lengri tíma er litið,“ segir Birgir.Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Mynd/ÞorkellHann telur skýrsluhöfunda horfa til fyrirmynda í Svíþjóð í þessu sambandi. „Ef við lítum til dæmis á sum landsþing í Svíþjóð sem eru af sömu stærðargráðu hvað varðar fólksfjölda og Ísland þá hafa sum þeirra reynt þessa leið,“ segir Birgir og bendir á góða reynslu heilbrigðisyfirvalda í sænska landsþinginu Östergötland. „Þetta er það landsþing sem kemur hvað best út varðandi gæði og kostnað við heilbrigðisþjónustu.“ Páll segir að lóðrétt stjórnskipulag sé til þess fallið að efla samvinnu milli þjónustusviða í heilbrigðiskerfinu. „Allt það sem bætir samvinnu milli mismunandi þátta heilbrigðiskerfisins er til bóta. Í sumum heilbrigðisumdæmum á Íslandi má segja að sé verulega lóðrétt skipulag vegna þess að þar er á sömu hendi bæði heilsugæsla og sjúkrahús,“ segir Páll og nefnir skipulag Heilbrigðisstofnunar Vesturlands sem dæmi. „Við erum hins vegar lengra frá því að sjá þetta í skipulagi höfuðborgarsvæðisins. Hins vegar er full ástæða til að skoða þetta þar líka,“ bætir hann við segir að nú sé boltinn hjá Landspítalanum, landlækni og heilbrigðisyfirvöldum að vinna tillögur skýrslunnar áfram.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Fleiri fréttir Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Sjá meira