Ítölsk kona framdi sjálfsmorð vegna kynlífsmyndbands Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 15. september 2016 22:57 Líkfylgd Tiziönu var sýnd í beinni útsendingu. Skjáskot
Fjórir menn hafa verið teknir til yfirheyrslu á Ítalíu í tengslum við sjálfsvíg konu sem barðist í marga mánuði við að fá kynlífsmyndband fjarlægt af Internetinu. Konan var 31 árs gömul og er þekkt sem Tiziana. Hún stytti sér aldur á heimili frænku sinnar á þriðjudag.Tiziana hafði sent myndbandið til fyrrverandi kærasta síns og þriggja annarra, sem deildu því á netinu. Yfir milljón manns horfðu á myndbandið og hún varð fyrir aðkasti í kjölfarið. Þetta kemur fram á vef BBC. Saksóknari hefur opnað á rannsókn á dauða hennar, en myndbandið komst í dreifingu á samfélagsmiðlum á borð við Facebook og Whatsapp fyrir um ári síðan. Mennirnir fjórir eru undir rannsókn fyrir ærumeiðingar. Í kjölfar þess að myndbandið fékk dreifingu hætti Tiziana í vinnu, flutti til Toscana og hafði ætlað að breyta nafni sínu. Myndbandið elti hana þó á röndum og hefur tilvitnun í hana úr myndbandinu meðal annars verið prentuð á stuttermaboli og símahulstur til sölu. Í dómsmáli hlaut Tiziana „réttinn til að gleymast“ og í kjölfarið var myndbandið fjarlægt úr leitarvélum og af ýmsum síðum, þar á meðal Facebook. Hún var einnig dæmd til að borga 20 þúsund evrur í lögfræðikostnað, sem nemur um tveimur og hálfri milljón íslenskra króna. Fjölmiðlar þar í landi hafa titlað sektina hina hinstu móðgun. Fregnir af dauða Tiziönu hafa vakið hneykslun og reiði og vakið upp umræðu um skemmandi áhrif þess að smána ungar konur. Líkfylgd Taziönu var sýnd í beinni útsendingu þar í landi. Fjölskylda Tiziönu hefur kallað eftir réttlæti. „Sem ríkisstjórn getum við lítið gert,“ sagði Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu. „Um er að ræða menningarlega baráttu - einnig pólitíska og samfélagslega. Við heitum að gera allt sem í okkar valdi stendur... Ofbeldi gegn konum er ekki óupprætanlegur vandi.“
Tengdar fréttir 14 ára stúlka kærir Facebook vegna hefndarkláms Lögfræðingar stúlkunar segja að maður, sem einnig hefur verið kærður af stúlkunni, hafi ítrekað birt nektarmynd af stúlkunni á samfélagsmiðlinum Facebook til þess að hefna sín á henni. 13. september 2016 14:40 Mest lesið Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Veður Sólheimar segja upp þjónustusamningnum Innlent Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Innlent Fleiri fréttir Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Sjá meira
14 ára stúlka kærir Facebook vegna hefndarkláms Lögfræðingar stúlkunar segja að maður, sem einnig hefur verið kærður af stúlkunni, hafi ítrekað birt nektarmynd af stúlkunni á samfélagsmiðlinum Facebook til þess að hefna sín á henni. 13. september 2016 14:40