Hjólakeppni við allra hæfi Sólveig Gísladóttir skrifar 7. september 2016 11:00 Tour of Reykjavík er haldin í Laugardalnum og ýmist hjólað alla leið á Þingvelli eða styttri hringi í Laugardal og miðborginni. Sérstök áhersla er lögð á að gera upplifunina ánægjulega fyrir yngsta aldurshópinn. Mynd/Pétur Þór „
Við ætlum að bjóða upp á vegalengdir fyrir alla aldurshópa og öll getustig, alveg frá tveggja kílómetra barnabraut og upp í 110 km alvöru hjólakeppni,“ lýsir Kjartan Ásmundsson hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur en ÍBR stendur fyrir Tour of Reykjavík sem haldin verður í fyrsta sinn á sunnudaginn. „Við höfum litið á Reykjavíkurmaraþonið sem fyrirmynd í skipulagningunni,“ segir Kjartan og bætir við að brotið verði blað í lokunum vega. „Þá munu öryggisbílar, lögreglan, dómarabílar og aðrir þjónustubílar fylgja hjólreiðafólki í lengstu vegalengdunum.“Boðið verður upp á tveggja km barnabraut í Laugardalnum.Barnabraut og þrautabraut Boðið verður upp á fjórar mismunandi vegalengdir. Hjólakraftur heldur utan um þá stystu, barnabrautina sem verður tveggja kílómetra hringur í Laugardalnum. Hjólaleiðin á að henta börnum frá fjögurra til tólf ára en þó er vissara að þau yngstu séu í fylgd fullorðinna. Engin tímataka er í þessari vegalengd og engin verðlaun önnur en ánægjan. Ræst verður kl. 14 frá Laugardalshöll. Það verður ýmislegt gert til að gera viðburðinn sem skemmtilegastan fyrir krakkana að sögn Þorvalds Daníelssonar hjá Hjólakrafti. „Latibær verður á staðnum og ýmis tónlistaratriði í gangi. Þá munum við verða með glænýja 50 metra langa braut með hólum og hæðum sem krakkarnir mega leika sér í á hjólum, hjólabrettum eða hlaupahjólum. Þá verða BMX-gaurarnir á svæðinu og leika listir sínar,“ segir hann. Öllum þátttakendum barnabrautarinnar verður boðið upp á djús og í Laugardalslaugina að viðburði loknum.Kjartan Ásmundsson hjá ÍBR heldur utan um skipulagningu Tour of Reykjavík. Stefnt er að því að viðburðurinn verði árlegur og fari vaxandi ár frá ári. Mynd/EyþórHjólað á lokuðum götum Boðið verður upp á 13 km borgarhring á lokuðum götum. „Þar geta allir tekið þátt, jafnvel þótt þeir hafi ekki stigið á hjólið í mörg ár,“ segir Kjartan. Hringurinn liggur frá Laugardalnum, um Skeifuna, Bústaðaveg, Hringbraut, niður í miðborgina og þaðan til baka Sæbraut og inn í Laugardal. Virk tímataka verður í boði svo þátttakendur fái staðfestan tíma en ekki verða veitt nein verðlaun. „Þetta er skemmtileg vegalengd fyrir fjölskylduna að fara saman.“ Næsta vegalengd sem fólk getur valið er 40 km en þá eru farnir þrír hringir eftir 13 km löngu brautinni. „Þetta er aðeins meiri keppni og verðlaun veitt í nokkrum aldursflokkum. Almenningur er líka hvattur til að mæta enda eru 40 km ekki svo löng leið á flatri braut,“ segir Kjartan og bendir á að krakkar niður í tólf ára geti tekið þátt.110 km hjólakeppni Aðalkeppni Tour of Reykjavík er 110 km hringur. „Hjóluð verður falleg og krefjandi leið frá Laugardalnum til Þingvalla um Nesjavallaleið. Farið um Grafning og Mosfellsheiði til baka, fram hjá Hörpu og endað í Laugardalnum. Þetta er keppni fyrir lengra komna og er bæði liða- og einstaklingskeppni,“ segir Kjartan. Búist er við harðri keppni og þegar eru búnir að skrá sig mjög sterkir erlendir keppendur að sögn Kjartans. Skráning fer fram á www.tourofreykjavik.is til klukkan 23 á föstudag en einnig er hægt að skrá sig í Laugardalshöllinni milli 12 og 15 á laugardaginn en þar fer einnig afhending skráningarganga fram.
Mest lesið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Áslaug býður í partý Lífið Matt Brown er látinn Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Fleiri fréttir Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Fréttatía vikunnar: Verðbólga, eldflaug og Dior Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“