Nágrannar fóstra leiksvæði Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 9. september 2016 16:15 Hluti íbúa sem hlúa að garðinum, Curver Thoroddsen, Phoebe Jenkins, Ásta Olga Magnúsdóttir, Þórður Jónsson og Heather Millard. Á bak við þau standa Jóhann Kári Kjartansson, Sigrún Lára Kjartansdóttir, Olga Aletta Roux, Valur Guðmundsson og Eva Stefánsdóttir. mynd/Eyþór
Hópur íbúa í nágrenni leiksvæðis við Nýlendugötu hefur tekið garðinn í fóstur. Þau segja framtakið efla íbúaandann og styrkja tengsl manna á milli og kenna krökkunum einnig að bera ábyrgð á nærumhverfi sínu. „Þessi garður á sér langa sögu og hefur gengið í gegnum ýmis skeið. Frá því að hafa verið gæsluvöllur í gamla daga er hann nú að verða eins konar íbúagarður eins og þekkist víða erlendis, staður sem höfðar til alls konar aldurshópa og alls konar fólks, þar sem fólk kynnist og leikur sér,“ segir Ásta Olga Magnúsdóttir, einn íbúa í nágrenni Nýlendugarðsins svokallaða, en nágrannarnir hafa tekið garðinn í fóstur. Saman hefur hópurinn hreinsað til, málað og smíðað og hófst handa í sumar undir handleiðslu hönnunarteymisins Krukku sem skipað er Daníel Hirti og Lindu Mjöll. „Við höfum tvisvar haft vinnudaga í sumar og verðum með einn í lok september,“ útskýrir Ásta, þetta sé íbúaframtak með aðstoð frá borginni en garðurinn er í eigu Reykjavíkurborgar.Mynd/Ásta Olga MagnúsdóttirFyrir nokkrum árum átti að færa Bræðraborgarstíg niður að sjó og malbika yfir garðinn samkvæmt deiliskipulagi að sögn Ástu. Íbúarnir mótmæltu því og var deiliskipulaginu breytt í kjölfarið. Eftir þetta tímabil hafi garðurinn verið í niðurníðslu þar til fyrir fimm árum þegar Ásta sótti um í „Betri Reykjavík“ að garðurinn yrði tekinn í gegn. „Þá var svæðið lagað mikið. Við lögðum áherslu á að það yrði snyrt og hreinsað en það var ekki til fjármagn fyrir mörg ný leiktæki. Við vorum alveg sátt við það og sáum fram á að uppbyggingin myndi gerast í skrefum og íbúar tækju þá meiri þátt. Leikvellir í Reykjavík geta verið dálítið keimlíkir og fyrir sama aldurshópinn og við vorum sammála um að það er skemmtilegast ef foreldrar hafa jafn gaman af því að koma í garðinn og krakkarnir og jafnvel líka fólk sem er ekki með börn. Það eru heldur ekki allir með garða í gamla Vesturbænum. Við hugsum þetta sem garðinn okkar allra. Við vonumst til að þetta verði lifandi verkefni sem bætir stöðugt í, kannski ný tegund af almenningssvæði hjá Reykjavíkurborg sem er hægt að skilgreina sem íbúagarð. Þar gilda aðrar reglur en á dæmigerðum leikvöllum og íbúar fá meiri ábyrgð,“ segir Ásta.Fenguð þið frjálsar hendur? „Ja, ekki alveg, það þarf að fylgja ákveðnum stöðlum og reglugerðirnar eru ansi margar. Til dæmis langaði okkur að setja upp körfuboltaspjald. Borgin fjarlægði það og taldi það laða of marga unglinga að svæðinu og næturgesti. Við höfum einnig beðið um ruslatunnu en borgin óttast að eiturlyfjaneytendur skilji þar eftir nálar. Þetta snýst um að finna ákveðið jafnvægi með borginni, það má kannski segja að við séum að læra á reglugerðirnar og borgin sé að læra á okkur." "Við viljum sjá fjölbreyttari leiksvæði sem ýta undir sköpunargleðina og höfða til fjölbreytts hóps, við viljum líka sjá þróun sem byggir á trausti. Okkur finnst forræðishyggjan geta gengið of langt, eins og foreldrar eigi að koma á róló og bara loka augunum á meðan börnin hoppa, en ekki leika sér með og vera vakandi með börnunum sínum. Það væri nú ekki hægt að hafa þann háttinn á í sundlaugunum! Svo má ekki gleyma að unglingar þurfa líka stað til að vera á og við þurfum að hlusta á þarfir þeirra. Það er fullt af áskorunum, nálægðin við miðbæinn hefur auðvitað margt í för með sér líka,“ segir Ásta.Sveinn Kjartan Hjartarson leggur sitt af mörkum við skreytingarnar. „En þetta er búið að vera gaman. Við leyfðum krökkunum að mála og taka virkan þátt. Þannig læra þau að þau eiga hlutdeild í svæðinu og þurfa að hugsa um sitt nærumhverfi. Þau eru líka „sérfræðingar“ þegar kemur að leiksvæðum. Þá er líka mikilvægt í þessu gamla hverfi þar sem svo margt er að breytast, mikil uppbygging og mikil umferð ferðamanna, að efla íbúaandann. Svona samvinna styrkir tengsl milli nágranna,“ segir Ásta og leggur áherslu á að mikil eining ríki um framtakið meðal íbúanna. „Þó að hver einasti íbúi taki ekki beinan þátt eru allir með í anda, maður finnur það sterkt. Margir hafa bara svo mikið að gera í viðhaldi á húsunum sínum. Það er mikil vinna að halda gömlum timburhúsum við. Hverfið lítur ekki svona út af sjálfu sér,“ segir Ásta brosandi.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira