Engar uppfinningar bara innleiðing! Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar 10. ágúst 2016 06:00 Jæja! Nú eru góðir sex mánuðir liðnir síðan fjöldi leiðtoga heimsins skrifaði undir Loftslagssamkomulagið í París. Umhverfisráðherra Íslands var þar á meðal. Við undirritunina skuldbatt ríkisstjórn Íslands sig til að vinna að því að ná markmiðum samkomulagsins. Fyrstu aðgerðir hennar eru þegar farnar að líta dagsins ljós en nýlega var auglýst verkefnið „rafbílar – átak í innviðum“ þar sem veittir verða styrkir að upphæð allt að 201 milljón á næstu þremur árum. Styrkirnir geta hæst numið 50% af áætluðum kostnaði við verkefnið þannig að vonandi sjáum við yfir 400 milljóna króna uppbyggingu innviða fyrir rafbíla á næstu þremur árum. Fleiri en ríkið hafa skuldbundið sig. 103 fyrirtæki skrifuðu undir svokallaða loftslagsyfirlýsingu FESTU og Reykjavíkurborgar. Stofnanir ríkisins, þessi 103 fyrirtæki, og vonandi miklu fleiri eru væntanlega þegar búin eða munu á næstunni setja fram og kynna markmið sín og aðgerðir. Mörg félaganna á lista FESTA eru með starfsemi á Akureyri og ríkið rekur fjölmargar stofnanir á Akureyri, eins og skóla, heilbrigðisstofnanir, Vegagerðina og lögregluna. Öll þessi félög og stofnanir eru mikilvægir þátttakendur í markmiðum Akureyrarbæjar um að verða kolefnishlutlaust bæjarfélag á næstu árum. Á undanförnum árum hefur bærinn farið í fjölmörg verkefni sem fæir hann nær markmiði sínu, svo sem frítt í strætó og framleiðslu á moltu og metani. En hver ættu að vera næstu skref hjá bæjarfélaginu? Eigum við að feta í fótspor t.d. San Francisco, sem hefur bannað frauðplastsumbúðir, eða Noregs og Hollands, sem stefna á að frá og með árinu 2025 verði bannað að flytja þangað inn bíla sem brenna jarðefnaeldsneyti? Margir fleiri eru með alvöru aðgerðir í gangi, t.d. stefnir bandaríski sjóherinn á að búið verði að skipta 50% af notkun hans á jarðefnaeldsneyti út fyrir aðra orkugjafa árið 2020. Margar borgir í Evrópu ætla sér að banna alla bílaumferð í miðbæjum sínum. Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, steig þetta skref fyrir nokkrum árum og hefur það gjörbreytt borginni og lífinu í miðbænum, sérstaklega hvað varðar hávaða og loftmengun. Borgin var m.a. vegna þessa valin „Green Capital 2016“. Sumir eru líka löngu búnir að gera eitthvað, eins og smábærinn Modbury á Englandi sem bannaði notkun á plastpokum fyrir tíu árum. Eins og okkur hefur tekist vel upp hingað til, með mikilli þátttöku íbúa í flokkun á lífrænu sorpi og stóraukinni notkun á strætó, þá gildir það sama nú að allir þurfa að koma með og taka þátt. Sérstaklega þurfa fyrirtækin og aðilar eins og matvöruverslanir, matvælaframleiðendur, veitingahús, rútufyrirtæki, bílaleigur, hótel o.fl. að setja sér skýr markmið og skilgreina aðgerðir ef þetta á að verða að veruleika. Hvað ætla þau að gera fyrir árið 2020 og hvað fyrir 2025 og 2030? Það þarf engar dýrar og flóknar aðgerðir enda er nú þegar búið að fjárfesta í framleiðslueiningunum (Molta, Orkey, Metan) og innviðunum (hleðslustöðvar, endurvinnslustöðvar, græna trektin, græna karfan). Þetta er allt komið upp, nú er bara einföld og ódýr innleiðing eftir: -kaupa rafmagns- og/eða metanbíla (þegar bílar eru endurnýjaðir) -bjóða starfsmönnum upp á samgöngustyrk eða aðgang að rafmagnshjóli -flokka allt lífrænt sorp og skila í Moltu -hirða alla notaða matarolíu og fitu og skila í Orkey -flokka allan úrgang eins og plast, pappa og málma -kolefnisjafna flugferðir með skógrækt Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir skrifar Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Meðsek um þjóðarmorð vegna aðgerðaleysis? Pétur Heimisson skrifar Skoðun Tími ábyrgðar í útlendingamálum – ekki uppgjafar Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun Takk starfsfólk og forysta ÁTVR Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Þjóðarmorðið í Palestínu Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Sjá meira
Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar
Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar