Formaður Félags heyrnarlausra: Félagið hefur aldrei og mun aldrei standa fyrir svona söfnunum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. ágúst 2016 13:26 Málið er komið á borð lögreglunnar á Suðurnesjum. vísir/gva
Óprúttnir aðilar, sem þykjast heyrnarlausir, hafa undanfarna daga gengið á milli fólks í verslunarmiðstöðvum og á milli húsa og reynt að hafa af því fé. Nokkrir einstaklingar hafa þegar afhent þessum aðilum peninga og málið komið á borð lögreglu. Daði Hreinsson, formaður Félags heyrnarlausra, segist harma þetta, og segir félagið ekki standa að fjáröflunum með þessum hætti. „Félagið harmar þetta mjög. Við höfum orðið vör við þetta fólk, en það tengist ekkert okkar félagsmönnum og þá teljum við þá heldur ekki heyrnarlausa,” segir Daði. Hann segist telja að um sé að ræða útlendinga. „Þeir hafa komið hingað til lands á eigin vegum. Ég veit þetta því ég fór í bæjarferð sjálfur í síðustu viku til þess að athuga þetta og sá þetta fólk, og þetta var fólk af erlendum uppruna.” Hann segir að um leið og félagið hafi fengið fár af þessu hafi verið haft samband við lögreglu. Hins vegar hafi þau svör fengist frá lögreglu að haldbærar sannanir þurfi, áður en hægt sé að grípa í taumana. Því hafi hann sjálfur haft uppi á fólkinu. Lögreglan á Suðurnesjum er komið með málið á sitt borð, en þessir aðilar hafa sést víða í Reykjanesbæ að undanförnu. Þá hafa þeir einnig verið á höfuðborgarsvæðinu. Aðspurður segir Daði fólkinu hafa haft einhvern pening af fólki. Hann biður því þá sem verða varir við það að hafa samband við lögreglu. „Það hefur fólk haft samband við okkur, alveg grunlaust, og spurt hvort við værum með slíka söfnun í gangi. Við sáum það líka á blöðunum sem þeir eru með á sér, að þetta eru beinþýðingar úr Google translate. Þannig að það sést langar leiðir að þetta eru óprúttnir aðilar. Við vörum því fólk við svona löguðu enda myndi fólk á okkar vegum, sem selja happdrætti, vera merkt félaginu. Félagið hefur heldur aldrei staðið fyrir svona söfnunum úti á götu og mun aldrei standa í,” segir Daði.
Tengdar fréttir Þykjast vera heyrnarlausir og svíkja út fé "Það virðist sem þeir einblíni á eldra fólk og séu þannig að nýta sér góðvild þess,“ segir Bjarney Annelsdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum. 15. ágúst 2016 06:00 Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Sjá meira
Þykjast vera heyrnarlausir og svíkja út fé "Það virðist sem þeir einblíni á eldra fólk og séu þannig að nýta sér góðvild þess,“ segir Bjarney Annelsdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurnesjum. 15. ágúst 2016 06:00