Vissi ekki að hann æfði með hryðjuverkasamtökum Nadine Guðrún Yaghi skrifar 19. ágúst 2016 07:00 Deilur hafa lengi staðið yfir milli Stofnunar múslima á Íslandi sem eiga Ýmishúsið og annarra trúfélaga múslima á Íslandi. Vísir/Haraldur „
Hann fór í þjálfun með þessum hópi í nokkrar vikur en vissi ekki að þetta væru hryðjuverkasamtök,“ segir Sandra Maryam Moe, stjórnarmaður Stofnunar múslima á Íslandi. Hún á við um eiginmann sinn, Andrew Ibrahim Wenham, en hann tók þátt í þjálfun á vegum hryðjuverkasamtakanna Jamaah Islamijah (JI) á Filippseyjum árið 2000. JI tengist hryðjuverkasamtökunum Al Kaída. Fjallað var um tengsl Wenham við samtökin í áströlskum og norskum miðlum á sínum tíma eftir að Wenham flutti til Noregs ásamt Söndru. Þau reka mosku saman í bænum Tromsö. Í samtali við miðlana sagðist Wenham, sem er ástralskur ríkisborgari, sjá eftir því að hafa komið sér í slíkan félagsskap. Hann hafi aldrei ætlað sér að verða partur af hryðjuverkasamtökum. Þvert á móti. Hann hafi ekki vitað að þetta væru hryðjuverkasamtök fyrr en eftir að hann var hættur í þjálfuninni og komin aftur til Ástralíu. Bæði trúfélög múslima á Íslandi, Félag múslima á Íslandi og Menningarsetur múslima, eru andsnúin starfsemi Stofnunar múslima á Íslandi sem er sjálfseignarstofnun. Fréttablaðið ræddi við nokkra múslima á Íslandi í röðum trúfélaganna tveggja sem allir könnuðust við mál Wenham. Þeir sögðu það óþægilega staðreynd að stjórnarmaður stofnunar sem kenni sem við múslima hér á landi hafi haft tengsl við hryðjuverkasamtök. Deilur trúfélaganna tveggja við Stofnunina hafa staðið yfir lengi og snýst meðal annars um fjármagn frá Sadí-arabíu til byggingar mosku á Íslandi sem Stofnun múslima fékk. Þeir múslimar sem Fréttablaðið ræddi við segja það afar óheppilegt að sjálfseignarstofnun sem stýrð er frá Svíþjóð sé með afskipti af málefnum múslima á Íslandi. Fjórir stjórnarmeðlimir stofnunarinnar eru búsettir erlendis og hafa lítil sem engin tengsl við landið.Sandra Maryam Moe MYND/AÐSEND„Þetta er deilur við hin félögin á Íslandi sem hafa staðið lengi. Þarna eru einstaklingar sem virðast vilja koma slæmu orðspori á Stofnunina. Það þarf engin að óttast þessi tengsl enda er eiginmaður minn góður maður og hefur unnið gott starf hér í Tromsö í þágu múslima. Við störfum í nánu samstarfi við aðra mosku hérna og við kirkjuna,“ segir Sandra og ítrekar að maður hennar hafi ekki áttað sig á því að hann væri tengdur hryðjuverkasamtökum. „Samkvæmt Íslam er stranglega bannað að ráðast á saklaust fólk og það er brot á íslömskum lögum. Hann var í þessari þjálfun fyrir hryðjuverkin 11. september og þá voru hryðjuverk ekki svo áberandi. Við fordæmum hryðjuverk og þetta er ekki neitt til að hafa áhyggjur af,“ segir Sandra. Ekki náðist í Wenham við vinnslu fréttarinnar en hann er á ferðalagi. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira