Vopnin streyma til Sýrlands og Jemen Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. júlí 2016 07:00 Uppreisnarmenn Hútí-hreyfingarinnar í Jemen hefja vopn sín á loft í höfuðborginni Sana. Fréttablaðið/EPA
Stórfelldur vopnaflutningur hefur átt sér stað undanfarin fjögur ár frá átta austurevrópskum ríkjum til Mið-Austurlanda. Stjórnvöld þessara átta ríkja hafa samþykkt vopnasöluna, en viðskiptin nema samtals um 1,2 milljörðum evra eða 160 milljörðum króna. Þetta fullyrða blaðamenn á vefmiðlunum BIRN og OCCRP, sem hafa verið að rannsaka þessi vopnaviðskipti undanfarið ár. Þeir hafa eftir sérfræðingum að þessi viðskipti séu næstum örugglega ólögleg. Löndin átta eru Króatía, Tékkland, Serbía, Slóvakía, Búlgaría, Rúmenía, Bosnía-Hersegóvína og Svartfjallaland. Kaupendur hafa tekið við vopnunum í Sádi-Arabíu, Jórdaníu, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Tyrklandi. Talið er að mikið af þessum vopnum hafi svo verið flutt áfram til Sýrlands, þar sem heiftarleg borgarastyrjöld hefur kostað nokkur hundruð þúsund manns lífið, og líklega hátt í hálfa milljón. Einnig leikur grunur á því að eitthvað af þessum vopnum hafi borist til Jemens, þar sem einnig hefur geisað langvinn og harðvítug borgarstyrjöld. Frá þessu er skýrt á fréttavef breska dagblaðsins The Guardian og vísað í grein á og ítarupplýsingar á occrp.org. Rannsóknin er söggð byggð á upplýsingum úr vopnaútflutningsskýrslum, skýrslum Sameinuðu þjóðanna, skráningu flugferða og vopnasölusamningum. Einnig var rætt við fulltrúa stjórnvalda í Króatíu, Tékklandi, Svartfjallalandi, Serbíu og Slóvakíu. Þeir sögðu allir að staðið sé við allar alþjóðlegar skuldbindingar, sem ríkin hafi gengist undir. Hins vegar er haft eftir Bodil Valero, sænskum þingmanna á Evrópuþinginu, að vopnasölulönd þessi ættu að skammast sín: „Ríki sem selja vopn til Sádi-Arabíu eða Mið-Austurlanda og norðanverða Afríku vanda sig ekki við áhættumat og brjóta því lög bæði Evrópusambandsins og sín eigin landslög.” Fram kemur að vopnasala frá þessum löndum í Mið- og Austur-Evrópu til ríkja í Mið-Austurlöndum hafi verið sáralítil þar til árið 2012, þegar hún jókst skyndilega, en þá var borgarastyrjöldin í Sýrlandi tekin að magnast. Stórtækust voru þessi viðskipti á árinu 2015.
Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Erlent Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Innlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira