Fótbolti

Íslensku strákarnir þeir einu sem skoruðu í öllum leikjunum sínum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði Böðvarsson fagnar einu af átta mörkum Íslands á EM 2016.
Jón Daði Böðvarsson fagnar einu af átta mörkum Íslands á EM 2016. vísir/vilhelm
Eftir 2-0 sigur Portúgals á Wales í kvöld liggur það ljóst fyrir að Ísland verður eina liðið á EM 2016 sem skoraði í öllum leikjum sínum.

Walesverjar voru búnir að skora í öllum sínum leikjum á EM þangað til Portúgalar héldu hreinu gegn þeim í kvöld.

Íslensku strákarnir skoruðu átta mörk í leikjunum fimm á EM. Þeir gerðu eitt mark í fyrstu tveimur leikjunum og svo þrjú í næstu þremur.

Aðeins þrjú lið hafa skorað meira en Ísland á EM; Frakkar, Walesverjar og Belgar.


Tengdar fréttir

Schalke hefur áhuga á Ragnari

Ragnar Sigurðsson segist hafa heyrt af áhuga þýska úrvalsdeildarliðsins Schalke á sér en fjölmörg félög hafa áhuga á íslenska landsliðsmanninum þessa dagana.

Roma með Birki undir smásjánni

Roma hefur áhuga á íslenska landsliðsmanninum Birki Bjarnasyni að því er fram kemur á vefnum gazzettaworld.com.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×