Leikurinn á móti Íslandi var síðasti landsleikurinn á ferlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júní 2016 12:45
Christian Fuchs, varnarmaður ensku meistaranna í Leicester City og fyrirliði austurríska landsliðsins, segist vera hættur í landsliðinu eftir vonbrigðin á Evrópumótinu í Frakklandi. Christian Fuchs er þó bara þrítugur en hann hefur spilað með landsliðinu í áratug. Hann hefur verið fyrirliði Austurríkismanna frá árinu 2012. Christian Fuchs spilaði hverja einustu mínútu með Austurríki á EM í Frakklandi og var líka með í öllum tíu leikjunum í undankeppninni,. 78. og síðasti landsleikur Fuchs á ferlinum er því tapleikurinn á móti Íslandi í lokaumferð riðlakeppninnar á EM. Austurríska landsliðið varð að vinna leikinn til að eiga möguleika á því að komast í sextán liða úrslitin en íslenska liðinu nægði jafntefli. Ísland komst í 1-0 og austurríska liðið klikkaði á vítaspyrnu áður en það náð að jafna leikinn í seinni hálfleik. Arnór Ingvi Traustason tryggði Íslandi síðan sigurinn með síðustu spyrnu leiksins. Þetta var enginn draumaendir á draumatímabilinu þar sem hann var lykilmaður hjá Leicester City sem vann óvænt enska titilinn. Christian Fuchs kom til Leicester City frá Schalke 04 á frjálsri sölu síðasta sumar og varð fyrsti Austurríkismaðurinn til að verða enskur meistari síðan að Alex Manninger vann titilinn með Arsenal 1998. Samningur Christian Fuchs og Leicester City er til ársins 2018 en hann ætlar engu að síður að hætta í landsliðinu þótt að hann sé á fullu að spila í bestu deild í heimi.
EM 2016 í Frakklandi Fótbolti Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Fleiri fréttir 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Sjá meira