Ronaldo: Ég er kominn í sögubækurnar hvort sem fólki líkar það eða ekki Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. maí 2016 12:30 Cristiano Ronaldo er búinn að skora 93 mörk í Meistaradeildinni. vísir/getty
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, veit að markamet hans í Meistaradeild Evrópu í fótbolta er nú þegar búið að tryggja honum góðan kafla í fótboltasögunni. Ronaldo er langmarkahæstur í Meistaradeildinni frá upphafi með 93 mörk, tíu mörkum meira en hans helsti keppinautur, Lionel Messi. Ronaldo verður í eldlínunni í kvöld þegar Real Madrid tekur á móti Manchester City í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Santiago Bernabéu í Madrid. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli. „Ég efast ekki um að ég mun eiga minn kafla í fótboltasögunni. Tölurnar tala fyrir sig sjálfar hvort sem fólki líkar það eða ekki,“ segir Ronaldo í viðtali á heimasíðu UEFA. „Ég verð við toppinn ásamt hinum. Sumir eru ánægðir með það en sumir ekki. Vafalítið er ég nú þegar kominn í sögubækurnar.“ Ronaldo er nú þegar búinn að skora 16 mörk í Meistaradeildinni á þessari leiktíð en hann var ekki með Real Madrid í fyrri leiknum gegn Manchester City. Hann getur bætt við metið sitt í kvöld og hjálpað spænska liðinu í úrslitaleikinn sem yrði sá 14. í sögu félagsins. Leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD.Markahæstu leikmenn í sögu Meistaradeildarinnar: Cristiano Ronaldo - 93 Lionel Messi - 71 Raúl - 71 Ruud van Nistelrooy - 56 Thierry Henry - 50
Meistaradeild Evrópu Mest lesið „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Enski boltinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sér ekkert að því að senda leikmönnum bara tölvupóst Fótbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Körfubolti Fleiri fréttir Frimpong í kuldanum og fer ekki á HM Mikil leynd yfir meiðslum Neymar en þau minna á Romário Vann tvo Evróputitla sama vorið Sér ekkert að því að senda leikmönnum bara tölvupóst Sjáðu markið sem tryggði Palace sigur í Sambandsdeild Evrópu Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti „Restin var bara ekki með“ „Þegar gengur vel þá tekurðu aðeins á loft“ Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Sjá meira