Lífið

Hannes Óli þarf kannski ekki að stíga til hliðar

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Hannes Óli hefur leikið Sigmund Davíð síðastliðin ár. Hann segist tilbúinn til þess að skoða það að halda áfram í hlutverki forsætisráðherra.
Hannes Óli hefur leikið Sigmund Davíð síðastliðin ár. Hann segist tilbúinn til þess að skoða það að halda áfram í hlutverki forsætisráðherra. Vísir/Samsett
Hannes Óli Ágústsson leikari segist tilbúinn til þess að skoða það að taka að sér hlutverk Sigurðar Inga Jóhannssonar í stað Sigmundar Davíðs í áramótaskaupinu ef kallið kemur. En eins og kunnugt er sagði Sigmundur Davíð sig frá forsætisráðuneytinu í gær og lagði til að varaformaður sinn, Sigurður Ingi, tæki við embættinu.

„Ef manni yrði boðið það þá yrði maður að kíkja á það tilboð. Dóri DNA lék hann reyndar í áramótaskaupinu fyrir tveimur árum þannig að það þyrfti að tala við hann.“

Hannes Óli segir að sér líði ágætlega þessa dagana en hann hefur leikið Sigmund Davíð undanfarin ár við mikinn fögnuð þjóðarinnar.

Hannes Óli hefur vakið mikla lukku í hlutverki Sigmundar Davíðs.
„Ég hef fengið mikið af samúðarkveðjum og svoleiðis í tengslum við þetta. Tengdaföður mínum var mikið kappsmál að Sigmundur Davíð myndi ekki segja af sér af þeirri einu ástæðu að tengdasonurinn myndi ekki missa jólabónusinn,“ segir Hannes og hlær. Hann hughreystir þó þá sem hafa áhyggjur af hans persónulegu líðan vegna afsagnar forsætisráðherra. 

„Mér finnst þetta nú enginn harmleikur fyrir mig persónulega. Þetta er bara gott fyrir þjóðina. Maður veit reyndar aldrei hvað er almennilega í gangi, þetta er orðinn svo mikill skrípaleikur.“ 

En gæti Hannes gripið til sömu takta þegar kemur að Sigurði Inga og hann hefur notað í leik sínum sem Sigmundur Davíð? 

„Þetta eru báðir dimmraddaðir, stórir menn. Sigurður Ingi jafnvel meira en Sigmundur,“ segir Hannes Óli hugsandi. 

Hugmyndin kom frá rithöfundinum Degi Hjartarsyni á Twitter:

„En ég hef ekki lagst í þetta almennilega, ég yrði bara að athuga þetta ef að þessu kæmi. En þeir eru mjög ólíkir í fasi. Ég yrði að skoða þetta vel.“ 

Stöðug líðan Hannesar hefur ef til vill eitthvað með það hlutverk sem hann bregður sér í þessa dagana að gera en hann tekur þátt í uppfærslu á verkinu Góði dátinn Svejk. Sýningin verður frumsýnd í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði á sunnudag. 

„Maður verður náttúrulega að hafa viðhorfið eða skapgerðina hans Svejk til að lifa af þennan skrípaleik. Hann er náttúrulega vanur að brosa í gegnum alla vitleysuna og sjá í gegnum allt blaður yfirmanna og stjórnvalda. Það er allavega mjög hollt að tileinka sér hugarfar hans á þessum síðustu og verstu tímum. Hann hefur alveg hjálpað mér að halda geðheilsunni í þessu fíaskói sem við stöndum frammi fyrir.“ Hér má nálgast upplýsingar um sýninguna.  


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×