Af góðri og vondri lögfræði Guðni A. Jóhannesson skrifar 17. mars 2016 07:00 Tryggvi Felixson í Fréttablaðinu 3.3. og Snorri Baldursson í sama blaði 7.3. gera harða hríð að undirrituðum vegna greinar minnar í blaðinu 27.2. Um leið og ég virði góðan hug og einbeittan vilja þeirra til þess að varðveita þau verðmæti sem felast í íslenskri náttúru þá afsakar það á engan hátt endurteknar tilraunir þeirra til þess að afflytja texta og innihald laga um Rammaáætlun þannig að það henti þeirra málstað. Þeir reyna hvað þeir geta að ætla verkefnisstjórn Rammaáætlunar nýtt og stærra hlutverk í stjórnsýslunni og Snorri, sem reyndar sakar undirritaðan um að viðhafa vonda lögfræði, gengur svo langt að kalla hana „fjölskipað stjórnvald sem er jafnsett Orkustofnun í stjórnkerfinu“. Lítum á það hvað sagt er um þetta í athugasemdum með frumvarpinu: „Líkt og fyrri verkefnisstjórnum yrði henni eingöngu ætlað að hafa ráðgjafarhlutverk. Verði frumvarpið að lögum er því á engan hátt hróflað við hlutverki opinberra stofnana á sviði rannsókna og stjórnsýslu.“Hvar liggja mörk friðlýsingar Tryggvi telur óþarfa að skilgreina það svæði sem á að njóta verndar því í skýringum við lögin standi að virkjunarsvæði í vatnsafli miðist við allt vatnasvið fallvatns ofan virkjunar og farveg fallvatnsins neðan virkjunar. Í athugasemdum við frumvarpið segir hins vegar: „Í 4. mgr. kemur fram að verkefnisstjórnin skuli afhenda ráðherra rökstuddar tillögur um flokkun virkjunarkosta og afmörkun landsvæða í samræmi við flokkunina. Á verkefnisstjórnin því að afmarka virkjunarsvæði og þau landsvæði sem hún telur rétt að friðlýst séu.“ Þar er reyndar einnig sagt að til álita komi að vernda heil vatnasvið en líka skýrt tekið fram að til álita komi að friðlýsa hluta vatnasviðs eða hluta fallvatns. Lög um rammaáætlun eru skýr um það hvernig virkjunarkostir koma til umfjöllunar hjá verkefnisstjórn sbr. eftirfarandi tilvísun úr 9. grein laganna. Þar koma fram hlutverk Orkustofnunar og verkefnisstjórnarinnar. „Ef virkjunarkostur er að mati Orkustofnunar nægilega skilgreindur skal verkefnisstjórn fá hann til umfjöllunar. Orkustofnun getur einnig að eigin frumkvæði falið verkefnisstjórn að fjalla um virkjunarkosti. Verkefnisstjórn fjallar um virkjunarkosti skv. 2. mgr. og þau landsvæði sem viðkomandi virkjunarkostir hafa áhrif á að hennar mati. Verkefnisstjórn getur að eigin frumkvæði eða samkvæmt beiðni endurmetið virkjunarkosti og landsvæði sem gildandi áætlun nær til og lagt til breytingar á henni." Í framhaldi af þessu er skýrt hvenær virkjanakostir koma ekki lengur til umfjöllunar í Rammaáætlun þ.e.a.s ef leyfi til nýtingar eða virkjunar hefur verið gefið út eða ef friðlýsing, ekki tillaga um friðlýsingu, bannar framkvæmdina.Tillaga um friðlýsingu er ekki friðlýsing Tryggvi býsnast yfir þeirri ósvífni Orkustofnunar að leggja fram tillögur um breyttar útfærslur á virkjunarkostum, sem eru í verndarflokki annarrar Rammaáætlunar. Þá þarf hann að útskýra hvað átt er við með eftirfarandi málsgrein í athugasemdum með frumvarpinu: „Einnig þarf áætlunin að skapa svigrúm til ákvarðana um friðlýsingu ákveðinna svæða gagnvart orkuvinnslu. Til þess að svo megi verða þarf áætlunin að ná til hæfilega langs tíma. Á sama tíma verður þó að veita ákveðið svigrúm til aðlögunar með tilliti til breyttra forsendna. Í því sambandi getur m.a. þurft að taka tillit til nýrra virkjunarkosta. Einnig þarf að vera unnt að taka tillit til nýrra rannsókna og nýrrar þekkingar og tækni. Þá má nefna að aðferðir við nýtingu viðkomandi orkulinda hafa breyst og nýjar aðferðir verið þróaðar við mat á áhrifum nýtingar og verndargildis viðkomandi svæða.“ Í upphaflegu frumvarpi var ákvæði um að gildistími Rammaáætlunar yrði 12 ár. Í nefndaráliti atvinnuveganefndar er lagt til að það ákvæði yrði fellt á brott með eftirfarandi rökstuðningi: „Að mati nefndarinnar er þetta óþarft þar sem verndar- og orkuáætlunin er stöðugt í endurskoðun og því ekki endanleg áætlun en hún kemur til endurskoðunar eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti “ Þetta verður að mínu mati ekki túlkað öðruvísi en svo að þeir kostir sem ekki fá umfjöllun hjá verkefnisstjórn Rammaáætlunar og eru ekki með í ályktun Alþingis á hverjum tíma lendi sjálfkrafa í biðflokki. Ég vil ekki trúa að það sé markmið þeirra sem berjast fyrir því að kostir í núverandi verndarflokki séu ekki teknir til umfjöllunar í málsmeðferð þriðju rammaáætlunar og hafni þannig í biðflokki næstu áætlunar. Mikilvægt er að tryggt verði, að slíkir kostir fái lögformlega rétta málsmeðferð samkvæmt þeim lögum sem tóku gildi eftir að önnur Rammaáætlun var samþykkt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum í rauninni ekki tapað Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun SÁÁ í uppnámi – Mín sýn sem aðstandandi Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Skaðaminnkun í sautján ár – og þörfin enn mikil Sóley Kristín Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Verður Grensásvegur hjarta tónlistar í Reykjavík? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að ferðaþjónustunni Helgi Kjartansson skrifar Skoðun Farsæld barna verður ekki tryggð án fjármagns Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar kjarabarátta kennara bitnar á börnunum Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Reykjavík beygir af Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Einkunnaskalinn 1–10 sem byrjar á 4 Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fimm óskir á afmælisdaginn Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar Skoðun Seljum ekki Landsvirkjun meðan við getum ráðið því sjálf Júlíus Valsson skrifar Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvenær ætti gjafakort að renna út? Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Góð lífskjör og öflugt atvinnulíf í Fjarðabyggð Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar Skoðun Þakkir til kennara frá ráðherra Inga Sæland skrifar Skoðun Leigubremsa innleidd á Íslandi! Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin á að vita betur Indriði Einar Reynisson skrifar Skoðun Geta allir aukið tekjur? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Ekki allir menn. En hvar eru allir karlarnir? Diljá Ámundadóttir Zoëga skrifar Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur þú áhuga á námsárangri og líðan barna í Garðabæ? Almar Guðmundsson,Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Þegar kerfið verður hluti af vandanum Arna Hrönn Aradóttir ,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Endurhæfum Reykjalund - Þakkir frá stjórn Hollvina Reykjalundar Júlíus Þór Jónsson,Bárður H. Tryggvason,Erna Arnardóttir,Kolbrún Þorsteinsdóttir,Örn Kjærnested skrifar
Skoðun Af hverju er efnahagur Íslands veikur? – Hvað getum við lært af Dönum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Umhverfi byggt af umhyggju Helga Guðrún Vilmundardóttir,Sigríður Maack,Jóhanna Höeg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Uppbyggingarsjóður: Oft fyrsta já-ið sem kemur góðum hugmyndum af stað Díana Jóhannsdóttir,Örlygur Hnefill Örlygsson skrifar
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar