Rómantík á Tinder: „Ef þetta gengur ekki þá er hægt að prófa einhvern annan“ Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar 15. janúar 2016 12:30 Flott pör.
Snjallsímaforritið Tinder kannast sjálfsagt flestir við en frá því haustið 2012 hefur forritið hægt og bítandi sótt í sig veðrið. Tinder, sem er sterfnumótaapp gerir fólki kleift að kynnast á auðveldan hátt en það er tengt við Facebook-síður fólks, svo ef einhver sýnir þér áhuga á Tinder, getur þú séð hverjir ykkar sameiginlegu vinir eru. Þó nokkur íslensk kærustupör hafa vafalaust myndast eftir að hafa kynnst í gegn um forritið, hafið þar spjall og skellt sér á deit. Fréttablaðið heyrði í þremur Tinder-pörum og fékk að heyra þeirra sögur.Eyþór Árni og Svava Rut ástfangin„Þetta byrjaði allt með því að ég lækaði mynd af honum og hann mynd af mér. Ég var fljót að fara tala við hann og sendi strax hæ. Það leið nánast vika þangað til ég fékk svar. Eftir það fórum við að tala saman í gegn um Tinder og aðra miðla eins og Facebook og Instagram. Það leið svo alls ekki á löngu þar til við ákváðum að hittast. Strax á eftir þá urðum við par. Í dag erum við gift og búum saman með fjögur börn, yngsta krílið eigum við saman, hana Emblu Máneyju en hún fæddist 27. október 2015,“ segir Svava hamingjusöm með kynni sín við Eyþór Árna á Tinder. „það skiptir máli að vera ekki feiminn við að gefa fólki séns. Því að þú verður ástfanginn af persónuleikanum. Útlitið er ekki allt og ef þú verður ástfanginn þá er ekkert annað fallegra en makinn þinn. Farðu líka beint í málið, ef ég hefði ekki sagt þetta eina hæ hefðum við jafnvel ekki eignast þetta fallega líf saman. Þú hefur engu að tapa, ef þetta gengur ekki þá er hægt að prófa einhvern annan,“ segir Svava. „Mitt ráð til fólks er bara að hafa góða mynd af sér, ég sjálf var bara með sætustu myndina af mér. Persónulega finnst mér ekki vera málið að hafa mynd af börnunum sínum á Tinder, það er alveg á hreinu að þú ert að fara á stefnumót, ekki börnin þín.“Kristinn Jón og Kristín BáraFékk skilaboð um Facebook-add „Þetta byrjaði allt saman með matsji á köldu haustkvöldi í ágústmánuði. En hvað gerist svo eftir matsjið? Persónulega var ég orðinn þreyttur á því að eiga frumkvæðið í spjalli,” segir Kristinn. ,,Það sem gerðist hjá okkur í fyrsta skrefi var því nákvæmlega ekkert, þar sem það fóru aldrei nein samskipti okkar á milli á Tinder-vellinum. Það var ekki fyrr en Kristín sá snapp af mér hjá sameiginlegum vini okkar þar sem ég var í dansgír á menningarnótt að hún bað þennan sameiginlega vin um að koma því vinsamlegast til skila að ég ætti að adda henni á Facebook. Mér líkaði afskaplega vel við þessa eftirfylgni og hikaði alls ekki við það þar sem ég man nú vel eftir dömunni úr Tinder-hafinu. Svo kom eitt lítið hæ sem leiddi út í samræður um tásur, önnur persónuleg mál og endaði með boði á deit. Við hittumst reyndar daginn fyrir fyrsta deitið fyrir ,,tilviljun“ í jóga-dansi í Sólum. Við fyrsta augnagot, bros, snertingu og knús vissi ég að það væri mikið spunnið í hana Kristínu og það hefur nú heldur betur sýnt sig yfir síðustu mánuði,“ segir Kristinn alsæll með nýju ástina. „Eina ráðið sem okkur dettur í hug er í rauninni að taka af skarið og hafa frumkvæði ef áhugi er virkilega fyrir hendi. Það er eitthvað sem stelpur mættu gera meira af. Við eigum að velja sjálf það sem við viljum og líkar vel við, en ekki bara að þiggja það sem kemur upp í hendurnar á okkur,“ segir Kristinn og bætir við: „Það er síðan lykilatriði að hafa eina útivistarmynd á móti vínglasinu.“Alda Dís og Ásgeir Vísir„Ég byrjaði á Tinder á laugardagskvöldi, eftir að vinkonur mínar sögðu mér frá appinu. Á Íslandi er í alvörunni engin stefnumótamenning svo þetta er nánast eini valkosturinn ef þig langar til að finna þér maka. Mér fannst þetta frekar fyndið en ákvað þó að slá til. Við Ásgeir hittumst mjög fljótlega eftir að við ákváðum að hittast í kaffi. Síðan þá höfum við verið saman. Ég var mjög ánægð eftir að hafa hitt hann en ég var viss um að honum hefði fundist deitið ganga ömurlega,“ segir Alda Dís. „Ef ég ætti að gefa fólki ráð þá væri það líklegast að fara alls ekki strax heim með einhverjum heldur byrja á því að spjalla saman og kynnast. Eftir það er kannski möguleiki á að hittast yfir kaffibolla. Einnig ráðlegg ég fólki að setja myndir af sér sem eru sem líkastar því sjálfu, fólk kann að meta það. Það er gaman að skoða myndir af fólki sem er natúral.
Tengdar fréttir Fólkið á Airwaves: Mættir á Tinder en hafa áhyggjur af vaxtarlagi íslenskra kvenna "Ég er líklega búinn að fá 20 match á síðustu 20 tímum. Eitt á klukkutíma,“ segir Austurríkismaðurinn Peter Kreyci. 5. nóvember 2015 15:15 Íslenskur frumkvöðull þróar Tinder fyrir hunda Safnar fyrir smáforritinu í gegnum fjáröflunarsíðuna Karolina Fund. 10. nóvember 2015 15:45 Mest lesið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Lífið Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Lífið Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Lífið Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Lífið „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Lífið Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Lífið Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Lífið Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu Lífið samstarf Fleiri fréttir Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Fyrrverandi bassaleikari Scorpions látinn Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni „Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Kvenskælingar svekktir eftir að hafa lent í hakkavél MR tvisvar í röð Heated Rivalry-stjörnur verða á Ólympíuleikunum Fengu gefins sjö nýjar þrautir frá breska þrautahöfundinum Mari og Njörður eiga von á sumarbarni Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Kemur Önnu miðli til varnar: „Þið megið segja að ég sé auðtrúa asni“ Sjá meira
Fólkið á Airwaves: Mættir á Tinder en hafa áhyggjur af vaxtarlagi íslenskra kvenna "Ég er líklega búinn að fá 20 match á síðustu 20 tímum. Eitt á klukkutíma,“ segir Austurríkismaðurinn Peter Kreyci. 5. nóvember 2015 15:15
Íslenskur frumkvöðull þróar Tinder fyrir hunda Safnar fyrir smáforritinu í gegnum fjáröflunarsíðuna Karolina Fund. 10. nóvember 2015 15:45
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Lífið