Bíó og sjónvarp

Maisie Williams um örlög Jon Snow

Samúel Karl Ólason skrifar
Spoiler viðvörun. Ef lesendur hafa ekki horft á fimmtu seríu Game of Thrones þáttanna og/eða vilja ekki vita um mögulegan söguþráð sjöttu seríu er mælt með því að ekki verði lesið lengra.



Hér að neðan verður farið yfir vísbendingar um örlög Jon Snow og hvort hann snúi aftur í sjöttu seríu Game of Thrones þáttanna og þá með hvaða hætti.



Síðasti séns.



Leikkonan Maisie Williams, sem er hvað þekktust fyrir að leika Arya Stark í Game of Thrones, hefur gefið áhorfendum vísbendingu um örlög Jon Snow, sem leikinn er af Kit Harington. Eins og þeir sem hafa fylgst með þáttunum, endaði síðasta sería á því að Snow var stunginn margsinnis af „bræðrum sínum“ í Nights Watch og virtist hann vera dáinn.

Fjölmargar vísbendingar um að hann snúi aftur hafa hins vegar litið dagsins ljós. Má þar nefna að hann klippti ekki hárið eftir að tökum lauk á fimmtu seríu. Þá hefur hann hefur sést við tökur fyrir sjöttu seríu, en það gæti auðvitað verið fyrir einhverja upprifjun eða atriði sem eigi að gerast í fortíðinni.

Þrátt fyrir að hafa fyrir nokkrum mánuðum sagt í útvarpsviðtali að Jon Snow væri liðinn, hefur hún nú gefið í skyn að aðstæður hans séu aðeins flóknari en það.

Rætt var við hana á Londons Critics Circle Awards nú nýlega. Þar sagði hún hve hræðileg örlög hans væru og hvað allir væru leiðir yfir þeim. Hún sagði að fólk væri sífellt að spyrja hana hvort Snow væri nokkuð dáinn.

„Það er snúið, en ég get ekki beint sagt að hann verði lifandi,“ sagði Williams.

Þar er hún að gefa í skyn að Snow komi aftur og þá ódauður, eins og áður hefur gerst í söguheiminum. Má þar nefna karaktera úr þáttunum eins og Fjallið og Beric Dondarrion úr þriðju seríu. Þeir eru fleiri í bókunum.

Sjá einnig: Lét framleiðendur Game of Thrones giska á nafn móður Jon Snow (vangaveltur um foreldra Jon Snow)

Að mestu eru einungis tvær fylkingar í söguheiminum sem búa yfir þeim hæfileikum að vekja upp hina lifandi dauðu. Það eru White Walkers í norðri og rauðu prestarnir sem tilbiðja R'hllor, lávarð ljóssins.

Jon Snow er í raun í færi beggja þeirra. White Walkers sækja hart fram í norðri og Melisandre yfirgaf Stannis og fór aftur til Castle Black. Hún er þar þegar Snow er stunginn og þykir líklegt að hún muni koma honum til bjargar.

Einnig gæti Snow lifað áfram í líkama úlfs síns, Ghost, þar sem hann er svokallaður vargur.

Eða þetta gæti allt verið rangt og Jon Snow einfaldlega dáinn. Við vitum ekkert.

Fyrsti þáttu sjöttu seríu verður sýndur þann 24. apríl.

Williams byrjar að ræða Jon Snow í byrjun þriðju mínútu.

Tengdar fréttir

Hárprúður og kafloðinn Jóhannes Haukur

Bölvað vesen að halda þessu snyrtilegu, en finnst hann samt svolítið smart svona loðinn. "Þetta fær líklega að fjúka þegar tökum á Game of Thrones lýkur í október,“ segir Jóhannes og útskýrir leyndina sem hvílir yfir þáttunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×