Árásirnar í Köln: Lögreglan þarf að endurskoða starfsaðferðir sínar Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. janúar 2016 08:20 Hátt í hundrað konur urðu fyrir grófu ofbeldi við aðaljárnbrautarstöðina í Köln á nýársnótt. vísir/getty
Ralf Jaeger, innanríkisráðherra í þýska sambandslandinu Norður-Rín og Vestfalíu, segir að lögreglan verði að tryggja að það ofbeldi sem konur urðu fyrir í Köln á nýársnótt, og fleiri þýskum borgum, endurtaki sig ekki. Lögreglan þurfi að endurskoða starfsaðferðir sínar og bregðast við því að stórir hópar karlmanna hafi ráðist með grófum hætti á tugi kvenna. Lögreglan í Köln hefur viðurkennt að mistök hafi verið gerð á nýársnótt. Aðstæður hafi verið vanmetnar og viðbúnaður lögreglu þetta kvöld hafi ekki verið nægur. „Eitthvað þessu líkt má aldrei gerast aftur, ekki aðeins í Köln, heldur einnig í öðrum stórum borgum. Þetta má ekki gerast og lögreglan sem og borgaryfirvöld þurfa að bregðast strax við,“ segir Jaeger. Þá varar ráðherrann við því að árásirnar verði notaðar sem tæki í hræðsluáróðri gegn flóttamönnum en talið er að mennirnir sem hafi ráðist á konurnar í Köln hafi verið arabar og/eða frá Norður-Afríku. „Sú orðræða sem nú fer fram hjá hægriöfgahópum og á internetinu er jafnhræðileg og ofbeldisglæpirnir gegn konunum. Þetta eitrar allt samfélagið,“ segir Jaeger. Öfgahópar á borð við Pegida segja árásirnar beina afleiðingu af þeim mikla fjölda flóttamanna sem komið hefur til Þýskalands undanfarið en borgarstjóri Kölnar segir ekkert benda til þess að flóttamenn hafi verið að verki á nýársnótt.
Tengdar fréttir Nokkur hundruð komu saman til að mótmæla árásunum í Köln Tugir kvenna urðu fyrir kynferðisárás og voru rændar í Köln á gamlárskvöld. 6. janúar 2016 09:44 Ofbeldi gegn konum í Köln vekur mikla reiði Lögreglan í Köln hefur viðurkennt margvísleg mistök í tengslum við kynferðisofbeldi sem tugir kvenna urðu fyrir á gamlársdag. Innanríkisráðherra Þýskalands krefst skýringa. Lögreglustjórinn segist ekki ætla að segja af sér. 7. janúar 2016 05:00 Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira
Nokkur hundruð komu saman til að mótmæla árásunum í Köln Tugir kvenna urðu fyrir kynferðisárás og voru rændar í Köln á gamlárskvöld. 6. janúar 2016 09:44
Ofbeldi gegn konum í Köln vekur mikla reiði Lögreglan í Köln hefur viðurkennt margvísleg mistök í tengslum við kynferðisofbeldi sem tugir kvenna urðu fyrir á gamlársdag. Innanríkisráðherra Þýskalands krefst skýringa. Lögreglustjórinn segist ekki ætla að segja af sér. 7. janúar 2016 05:00