Kristinn aðeins sá fimmti til að skora í fyrstu tveimur landsleikjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2016 06:00 Kristinn Steindórsson hefur skorað í tveimur fyrstu leikjum sínum með íslenska A-landsliðinu og hér fagnar hann marki sínu um síðustu helgi. Vísir/Getty
Kristinn Steindórsson hefur skorað í tveimur fyrstu leikjum sínum með íslenska A-landsliðinu í fótbolta og því hafa ekki margir aðrir náð. Kristinn setti met fyrir ári þegar hann skoraði eftir aðeins sex mínútur í sínum fyrsta A-landsleik. Tækifæri númer tvö kom ekki fyrr en í Los Angeles á sunnudaginn eða 380 dögum síðar. Það tók Kristin aðeins þrettán mínútur að koma Íslandi í 1-0 á móti Bandaríkjunum á heimavelli Los Angeles Glalaxy. Bandaríkjamenn unnu leikinn á endanum 3-2 en Kristinn var kominn í fámennan hóp. Kristinn er aðeins einn af fimm leikmönnum sem hafa verið á skotskónum í fyrstu tveimur landsleikjum og jafnframt sá fyrsti til að ná því í tæp nítján ár. Hinir fjórir meðlimir klúbbsins eru stofnmeðlimurinn Lárus Þór Guðmundsson auk þeirra Erlings Kristjánssonar, Guðmundar Steinssonar og Tryggva Guðmundssonar. Tryggvi var síðastur á undan Kristni að fá aðild en hann skoraði í tveimur fyrstu leikjum sínum árið 1997. Lárus Guðmundsson var fyrstur til að skora í tveimur fyrstu landsleikjum sínum en það leið þó meira en ár á milli fyrstu landsleikja hans. Erlingur Kristjánsson skoraði þrjú mörk í tveimur leikjum á móti Færeyjum í byrjun ágúst 1982 og var annar meðlimur klúbbsins. Guðmundur Steinsson þurfti að bíða í meira en fjögur ár eftir öðrum landsleiknum. Aron Sigurðarson skoraði í sínum fyrsta landsleik í leiknum við Bandaríkjamenn og fær því möguleika á að bætast í þennan hóp þegar hann fær næsta tækifæri með landsliðinu.
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Handbolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Sjá meira