Fimmta mannskæðasta lestarslys í sögu Indlands Jóhann Óli Eiðsson skrifar 21. nóvember 2016 07:00 Lestarslys eru tíð á Indlandi og dauðsföll tengd lestum algeng. vísir/epa
Minnst 115 eru látnir og um 150 slasaðir eftir að lest fór út af sporinu í norðurhluta Uttar Pradesh-héraðs á Indlandi í gær. Fjöldi látinna jókst jafnt og þétt í allan gærdag. Líklegt er talið að sú þróun gæti haldið áfram í dag. Björgunarmenn unnu allan daginn í gær að því að draga lík og slasaða úr vögnunum fjórtán sem fóru af sporinu. Slysið varð skammt frá þorpinu Pukhrayan. Uttar Pradesh er í norðurhluta Indlands við landamærin að Nepal. Orsök slyssins er ókunn en indverskir miðlar, þar á meðal Times of India, hafa gert því skóna að sködduðum teinum hafi verið um að kenna. Slysið átti sér stað klukkan þrjú að nóttu að staðartíma. Farþegar sem komust lífs af lýsa því hvernig þeir hrukku upp með andfælum við mikið högg. Sjónin sem blasti við þeim í birtingu hafi verið skelfileg. Flestir hinna látnu voru í fremstu tveimur vögnunum en þeir ultu þegar lestin fór út af sporinu. Hluti vagnanna er afar illa farinn sem gerir björgunarmönnum erfitt um vik með að komast að hinum særðu. Klippum hefur verið beitt en illa hefur gengið að láta þær ná í gegnum vagnana. Slysið er fimmta mannskæðasta lestarslys í sögu Indlands. Lestarkerfi landsins er hið þriðja lengsta í heimi og brúkað af um 22 milljónum farþega daglega. Mörg þúsund manns deyja í slysum tengdum lestum ár hvert og til dæmis fórust rúmlega 27.500 í slíkum slysum árið 2014.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Minnst hundrað látnir í lestarslysi í Indlandi Fjórtán lestarvagnar fóru af sporunum og og minnst 150 eru slasaðir. 20. nóvember 2016 10:05 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Sjá meira
Minnst hundrað látnir í lestarslysi í Indlandi Fjórtán lestarvagnar fóru af sporunum og og minnst 150 eru slasaðir. 20. nóvember 2016 10:05