Sýrlandsforseti sáttur við kjör Donalds Trump Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. nóvember 2016 07:00 Assad Sýrlandsforseti fagnar því ef Trump ætlar að berjast gegn Íslamska ríkinu. Hér heilsar hann upp á sýrlenska hermenn. Fréttablaðið/EPA
Sýrland Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, er jákvæður í garð Donalds Trump, nýkjörins forseta Bandaríkjanna. Assad segir Trump verða bandamann ef hann heldur til streitu kosningaloforði sínu um að Bandaríkjamenn eigi að einskorða afskipti sín af Sýrlandi við baráttuna gegn Íslamska ríkinu. Bandarísk stjórnvöld hafa lýst andstöðu við bæði ríkisstjórn Assads og Íslamska ríkið í Sýrlandi. Samkvæmt frásögn BBC mun Trump hins vegar hafa sagt í kosningabaráttu sinni að það væri „brjálæði“ að lýsa yfir andstöðu við báða hópana og tók fram að ef Bandaríkin háðu stríð gegn Sýrlendingum gæti það leitt til átaka við Rússa. Assad segir að yfirlýsing Trumps lofi góðu en hann hefði efasemdir um hvort Bandaríkjaþing myndi leyfa honum að halda þessari stefnu til streitu. „Við vitum ekki hvað hann ætlar að gera, en ef hann ætlar að berjast gegn hryðjuverkamönnunum þá munum við verða bandamenn hans í því, eins og við erum bandamenn Rússa, Írana og margra annarra þjóða,“ segir Assad. Í samtali við Wall Street Journal á föstudaginn sagði Trump að hann vildi hætta stuðningi Bandaríkjanna við hófsama uppreisnarmenn í stríði þeirra við Assad af því að „við höfum ekki hugmynd um hvaða fólk þetta er“. Tímaritið Newsweek segir að stefna Trumps muni gleðja Rússa, sem styðja Assad í baráttu hans gegn hófsömum uppreisnarmönnum og Íslamska ríkinu. Pútín hefur nú þegar hringt í Trump til að óska honum til hamingju með sigurinn í kosningunum og til þess að ræða kosti þess að styrkja tengsl Bandaríkjanna og Rússa. Viðtalið við Assad birtist á sama tíma og bardagar hefjast að nýju í Aleppo eftir þriggja vikna vopnahlé. Vopnahléið var gert til þess að leyfa íbúum og uppreisnarmönnum að yfirgefa stríðssvæðið. Það tók enda á þriðjudag þegar orrustuþotur byrjuðu að sprengja borgina að nýju. Elizabeth Trudeau, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, gagnrýndi árásirnar og afskipti rússneskra stjórnvalda af landinu. „Rússar eru aftur byrjaðir að styðja ríkisstjórn Assads í stríði hennar gegn sýrlenskum almenningi,“ segir hún.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira