Leita að brúðhjónum til að gifta í sýningu Guðrún Ansnes skrifar 5. september 2016 11:15 Guðrún Selma segir þær Gígju leita eftir einu, tveimur eða þremur pörum til að gefa saman í leiksýningunni. Vísir/Ernir
Brúðkaup er hin fullkomna stund, þar sem allt þarf að vera fullkomið og leitast er við að ná þessu markmiði, fullkomnun,“ segir Guðrún Selma Sigurjónsdóttir sem ásamt Gígju Jónsdóttur leitar nú logandi ljósi að tilvonandi brúðhjónum sem vilja gifta sig í sýningunni þeirra A Guide to the Perfect Human sem sýnd verður í Tjarnarbíói. „Við gerðum saman verk í fyrra sem hét Drop Dead Diet sem var unnið út frá megrunarkúrum. Nú erum við að vinna í sjálfstæðu framhaldi þar sem sjálfshjálparbækurnar eru í forgrunni. Þaðan fórum við yfir í hugmyndina um fullkomnun. Það eru allir að reyna að ná þessu markmiði, að vera fullkominn, bæði andlega og líkamlega.“ Sýningin fer á fjalirnar í janúar svo þau pör sem gæla við að láta pússa sig saman á óvenjulegan og ansi ódýran hátt ættu sannarlega að velta möguleikanum fyrir sér en þær stöllur munu sum sé sjá um vígsluna og veisluna eins og hún leggur sig, brúðhjónunum að kostnaðarlausu. Nema hvað, að þeir gestir sem brúðhjónin bjóða greiða inn á sýninguna eins og aðrir sýningargestir. „Það hefði vissulega verið miklu auðveldara að finna einhverja leikara til að leika þetta en við viljum blanda saman raunveruleika og tilbúningi. Við erum að velta fyrir okkur hvort fullkomleikinn sé raunverulegur. Það rímar svo vel við það sem við erum að sjá á netinu og mátum okkur endalaust við, en vitum svo ekki hvað er raunverulega á bak við. Það er gaman að geta leikið sér með raunveruleikann og sviðssetninguna svona,“ útskýrir Guðrún. En eitthvað kostar nú að blása til brúðkaups, ætla þær stöllur að standa straum af þeim kostnaði fyrir brúðhjónin? „Skiptidíllinn er þannig, já, að við sjáum um það allt. En við erum ekki að fara að kaupa hundrað þúsund króna kjól á brúðina eða neitt svoleiðis,“ segir hún og skellir upp úr en heldur svo áfram: „Við erum með góða búninga- og leikmunahönnuði á okkar snærum.“ Guðrún segir að fyrir þá sem hafa áhuga á að láta pússa sig saman á eftirminnilegan hátt sé leiksýning afar ákjósanlegur kostur. „Þetta er engin keppni, fólk getur bara haft samband við mig með því að senda mér tölvupóst á netfangið gudrunselmas@gmail.com. Ég reikna með að við tökum ein til þrenn brúðhjón,“ segir hún og segir fólk ekki þurfa að óttast langt og strangt æfingaferli. „Þetta verður bara eins og þegar fólk giftir sig. Þau munu ekkert flækjast inn í ferlið og þurfa ekki að læra neitt hlutverk,“ segir hún að lokum.
Mest lesið Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ Lífið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Lífið Bryndís Líf orðin móðir Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið „Ég var mjög skrítinn krakki“ Lífið Fleiri fréttir Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Sjá meira