Flóttamannastefnu Merkel kennt um fylgistap Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. september 2016 13:22 Flokkur þjóðernissinna í Þýskalandi bar sigur úr býtum í kosningum í heimaríki Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Vísir/AFP
Bandamenn Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, hafa hvatt hana til þess að breyta um stefnu í málefnum flóttamanna eftir að flokkur þjóðernissinna fékk betri kosningu en Kristilegir demókratar. Alternative für Deutschland, flokkur þjóðernissinna í Þýskalandi, fékk um 22 prósent atkvæða í kosningum í heimaríki Merkel, Mecklenburg-Vorpommern, í gær. Flokkur Merkel, Kristilegir demókratar, máttu sætta sig við 20 prósent atkvæða. Um ein milljón flóttamanna kom til Þýskalands á síðasta ári, þar af fjölmargir eftir að ríkisstjórn Þýskalands, með Merkel í fararbroddi, ákvað að slaka á landamæraeftirliti. Merkel segir sjálf augljóst að úrslit kosninganna snúist um málefni flóttamanna en að hún muni standa á sínu. Hefur hún hafnað öllum hugmyndum um að loka landamærum Þýskalands eða setja þak á fjölda flóttamanna sem fá að koma inn í landið. Segja stjórmmálaskýrendur ytra að niðurstöðurnar kosningarinnar í heimaríki Merkel séu áfall fyrir hana og að stefna Alternative für Deutschland í málefnum flóttamanna og innflytjenda höfði sterklega til þeirra sem áhyggjur hafi af komu flóttamanna til Þýskalands. Vinsældir Merkel hafa dvínað á landsvísu undanfarin misseri en þó eru um 45 prósent Þjóðverja ánægð með störf hennar. Næstu þingkosningar í Þýskalandi fara fram í september á næsta ári og hefur Merkel enn ekki gefið út hvort hún muni bjóða sig fram á ný.
Tengdar fréttir Vinsældir Merkel dvína hratt eftir árásir Eftir tvær hryðjuverkaárásir í Þýskalandi í síðasta mánuði hafa vinsældir Angelu Merkel minnkað hratt. 6. ágúst 2016 13:30 Þjóðernissinnar stærri en Kristilegir demókratar Alternative für Deutschland, flokkur þjóðernissinna í Þýskalandi, fékk betri kosningu en Kristilegir demókratar, flokkur kanslarans Angelu Merkel, í kosningum sambandsríkisins Mecklenburg-Vorpommern í gær, ef marka má útgönguspár. 5. september 2016 07:00 Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Erlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fleiri fréttir „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Sjá meira
Vinsældir Merkel dvína hratt eftir árásir Eftir tvær hryðjuverkaárásir í Þýskalandi í síðasta mánuði hafa vinsældir Angelu Merkel minnkað hratt. 6. ágúst 2016 13:30
Þjóðernissinnar stærri en Kristilegir demókratar Alternative für Deutschland, flokkur þjóðernissinna í Þýskalandi, fékk betri kosningu en Kristilegir demókratar, flokkur kanslarans Angelu Merkel, í kosningum sambandsríkisins Mecklenburg-Vorpommern í gær, ef marka má útgönguspár. 5. september 2016 07:00