Öskraði á fólk út um allt á meðan Hafnfirðingarnir fluttu inn í IKEA Stefán Árni Pálsson skrifar 5. september 2016 14:30
Snapchat-keppnin So You Think You Can Snap!, þar sem framhaldsskólar landsins etja kappi, heldur nú áfram á þriðju keppnisviku. Nikulás Hansen, Fjölbrautaskóla Suðurlands, og Kristinn Óli Haraldsson úr Flensborg mættust á föstudaginn á tíunda keppnisdegi. Hægt er að horfa á framlag þeirra í spilaranum hér að ofan. Nikulás gekk um allan Selfossbæ og öskraði úr sér líftóruna. Í Flensborg fóru menn í IKEA og gerðu sig heimakæra þar. Tuttugu framhaldsskólar hafa skráð sig til leiks í keppninni. Hver skóli teflir fram einum snappara en keppnin fer fram á Snapchat-reikningi Áttunnar, Attan_official, og fer atkvæðagreiðslan fram þar.Tveir skólar keppa á dag og reyna snappararnir að öðlast hylli áhorfenda með fyndnum, skemmtilegum eða áhugaverðum snöppum. Áhorfendur velja svo þann sem þeim þykir betri með skjáskoti í lok dags. Sá skóli sem fær fleiri skjáskot og þar af leiðandi atkvæði kemst áfram í undanúrslit. Atkvæðagreiðsla fyrir níunda keppnisdag kláraðist á föstudag en þar mættust MR og VMA. VMA hafði betur og heldur skólinn áfram í næstu umferð.Albert hafði betur fyrir hönd VMA.MH og Framhaldsskólinn á Húsavík mætast í dag í fyrstu viðureign undanúrslitanna og er hægt að fylgjast með einvíginu á Snapchat-reikningnum Attan_official. Við munum sýna myndband af þeirri viðureign hér á Vísi á morgun. Keppnin heldur síðan áfram í þessarri og næstu viku og mun Vísir fylgjast grannt með gangi mála allt til enda. Að keppninni stendur samfélagsmiðlaþátturinn Áttan, sem þeir Nökkvi Fjalar, Aron Ingi og Egill Ploder skipa. Nýherji er bakhjarl keppninnar og fær sigurvegarinn nýja Lenovo tölvu í vinning.Dagskrá keppninnar - Undanúrslit: Mánudagur 5. september Menntaskólinn við Hamrahlíð vs. Framhaldsskólinn á Húsavík Þriðjudagur 6. september - Menntaskólinn á Tröllaskaga vs. Menntaskólinn á Akureyri Miðvikudagur 7. september Menntaskólinn í Kópavogi vs. Verslunarskóli Íslands Fimmtudagurinn 8. september Menntaskólinn við Sund vs. Fjölbrautarskólinn í Garðabæ Föstudagurinn 9. september Verkmenntaskóli Akureyrar - FlensborgSigurvegarinn hlýtur Lenovo tölvu frá Nýherja.
So You Think You Can Snap! Mest lesið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Lífið Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Sjá meira