Enginn Íslendingur til rannsóknar í stærsta barnaníðingsmáli í sögu Noregs Atli Ísleifsson skrifar 24. nóvember 2016 11:30 Rannsókn norsku lögregunnar hófst í janúar eftir að hún fékk ábendingu frá bandarísku alríkislögreglunni FBI. Mynd/Af fréttamannafundi norsku lögreglunnar
Enginn Íslendingur er til rannsóknar í stærsta barnaníðingsmáli sem komið hefur inn á borð lögreglunnar í Noregi. Þetta kemur fram í svari lögreglunnar í Hörðalandi við fyrirspurn Vísis. Alls hafa ákærur verið gefnar út gegn 51 manni í málinu sem hefur gengið undir nafninu „Operation Dark Room“. Talið er að fleiri verði handteknir þegar fram í sækir. Hilde Reikrås, sem stýrði aðgerðum lögreglu í málinu, sagði á fréttamannafundi á sunnudag að níðingsverkin hafi verið framkvæmd gegn börnum á öllum aldri, allt niður í ungabörn. Hún kom jafnframt með dæmi um þau skelfilegu brot sem börnin urðu fyrir. Lögregla lagði hald á alls um 150 terabætum af gögnum, þar á meðal myndir, myndskeið og afrit af netspjalli barnaníðinga. Tuttugu af þeim 51 manni sem voru handteknir voru handsamaðir í Vesturlandsumdæmi norsku lögreglunnar, en 31 í öðrum umdæmum. Þá er einn maður á erlendri grundu til rannsóknar. Allir hinir handteknu eru karlmenn. Reikrås lagði áherslu á að aðgerðin sneri ekki einungis að einum barnaníðingshring, heldur nokkrum. Ljóst sé að meðal níðinganna séu einhverjir með mikla menntun eða reynslu af tölvumálum, þar sem mikið hefur verið lagt í kóðun og fleira til að fela sporin. Reikrås tók á fréttamannafundinum dæmi um að einn hinna handteknu væri með barnshafandi konu og rætt við aðra níðinga að brjóta á barninu þegar það kæmi í heiminn. Sumir níðinganna höfðu streymt brot sín, oft á eigin börnum, í beinni útsendingu á lokuðu netsvæði. Á meðal hinna handteknu eru tveir kjörnir fulltrúar, kennari og lögfræðingur. Rannsókn norsku lögregunnar hófst í janúar eftir að hún fékk ábendingu frá bandarísku alríkislögreglunni FBI. Níðingarnir eiga yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Sjá meira